sunnudagur, desember 25, 2005
Gleðileg jol vinir nær og fjær.
Við viljum óska ykkur öllum gleðilegra jóla. Við erum byrjuð að halda jól hérna enda 8 tímum á undan íslenskum tíma. Borðuðum kalkún með öllu tilheyrandi í sól og yl. Merkilegt bara hvað þetta var jólalegt aðfangadagskvöld hjá okkur. Erum með jólatré (gervi að vísu), nóa konfekt og mömmu og pabba. Jóladag verður eytt á ströndinni með nestiskörfu og köldum drykkjum. Ekkert hangikjöt þessi jól... tollararnir borða það bara kvikindin. Jólakveðja frá Ástralíu, Thor, Áslaug og Thor
föstudagur, desember 09, 2005
Smá fréttir
Við erum búin að vera upptekin undanfarið að kveðja fólk sem er að flytja frá Perth og að undirbúa heimsókn tengdó. Inná milli erum við að reyna að útbúa jólakort og senda pakka heim til Íslands.
Það er kaldasta sumar "ever" hérna í Perth. Ekki nema 25 stiga hiti á daginn og fer niður í 15 gráður á kvöldin. Það er samt kaldara en það hljómar. Hitinn fer vonandi upp í 30 gráður eftir viku. Ætli maður verði ekki farinn að bölva hitanum eftir einhvern tíma....
Annars er það í fréttum að við fórum á tónleikana með Emilíönu Torrini. Þetta voru frábærir tónleikar og Emilíana er ótrúlega góð. Héldum nokkur kveðju grill fyrir international stúdenta sem eru að fara frá Perth. Grillið stendur ennþá vel fyrir sínu og við erum komin með nokkra rétti sem virðast ekki klikka...
Búin að fara nokkrum sinnum á ströndina - ég er ekki búinn að losna við stuttermabolafar dauðans og er að hugsa um að hætta að nota vörn númer 30 til að gera það. Ég verð eflaust eins og marineraður humar eftir það.
 Thor jr. með sítt að aftan á Cottesloe. Hann fór einu sinni á bólakaf í sjóinn en fannst það bara gaman. Mér fannst það ekki eins fyndið.
Um síðustu helgi fórum við í vínsmökkum í "Swan Valley" með Katrínu, Palla, Ella og Kollu, Ásgeiri og Katrínu. Krakkarnir léku sér á meðan fullorðna fólki smakkaði rautt, hvítt, rósa og púrtvín. Ég var bílstjóri í þetta skiptið... Heimsóttum Lancaster, Sandalford og Fish Tail Wineries í þetta skiptið. Núna eigum við bara eftir að skoða 30-40 í viðbót. Keyptum miða á tónleika með Missy Higgins (mjög góð áströlsk söngköna sem á eftir að heyrast á Íslandi fljótlega) sem verða haldnir á Sandalford vínekrunni. Við sjáum fyrir okkur sitjandi á nýja pikknikk teppinu, með rauðvín, osta og 30 stiga hita, hlustandi á ljúfa tónlist í kvöldsólinni.
 Katrín, Ásgeir og Thor á Sandalford
Við skelltum okkur í sukkulaði verksmiðju og fengum að smakka súkkulaði. Þetta er ekki leiðinlegur rúntur.
 Súkkulaðið í Margaret River Chocolat Factory (sem er samt í Swan Valley) hefur dáleiðandi áhrif.
Áslaug var að fara út á flugvöll að sækja tengdó. Þau ættu að vera lent núna. Það verður gaman að hafa þau og sýna þeim Perth. Ekki skemmir að hafa þau hérna um jólin og að fá kalkún ala tengdó. Ég stórlega efast um að þau séu að koma hingað til að hitta mig :-) Þau eru búin að skipa okkur að taka barnabarnið af leikskólanum á meðan þau eru hérna ....
miðvikudagur, desember 07, 2005
The Block
Núna er spurningakeppninni lokið! Það voru nokkrir sem tóku þátt og voru allir með rétt svar. Þessir gaurar léku í áströlsku þáttunum "The Block".
Sigurvegari keppninnar er enginn annar en Sigtryggur og fær hann bjór haldarann í pósti fljótlega.
Til hamingju :)

|