Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

miðvikudagur, febrúar 23, 2005

Það er búið að vera nóg að gera og lítill tími gefist til að blogga. Áslaug er á kynningu í skólanum og Thor jr. er sofandi þannig að ég ætla að blogga nokkrar línur.

Við leigðum okkur raðhús nr. 1 á Coode Street 16 eftir að hafa dvalið á hóteli Satans í nokkrar nætur http://www.australia-hotels.com.au/5421p1-perth-hotels-aarons.html - þetta var kannski ekki alslæmt hótel en eftir að hafa verið á 5 stjörnu hóteli í Singapore http://www.rafflescityhotels.com/raffles/ þá var þetta eins og að flytja inn á KFUM. Daginn eftir að við lentum þá leigðum við okkur bíl, keyptum okkur dagblað og fórum að skoða íbúðir. Við fengum 40 stiga hita og glampandi sól - sem var ekkert sérlega gott - vindurinn var eins og að maður stæði fyrir framan hárblásara á hæsta hita. Sem betur fer fundum við búð sem seldi ís og bíllinn var með góða loftkælingu. Við keyrðum um alla Perth (vinstri umferð) og fengum tilfinningu fyrir hverfunum. Það var verið að sýna nokkrar íbúðir um helgina 12-13. feb en ekkert sem okkur leist á. Á mánudeginum fórum við á fasteignasölu og þeir sýndu okkur eitt raðhús sem okkur leist vel á. Við vildum endilega leigja það og gengum frá leigusamningi daginn eftir. Við máttum fá lyklana helgina eftir en tókum það ekki í mál og fluttum inn um morguninn. Í Ástralíu leigja fasteignasölur út hús fyrir fólk. Þar sýnir fasteignasalinn eignina og vinnur fyrir peningunum - ekki eins og á Íslandi þar sem að fasteignasalar gera nánast ekkert.



Coode street 1/16 - South Perth 6151, Western Australia

Það er tvöfaldur bílskúr fyrir aftan húsið. 3 svefnherbergi (þannig að það er pláss fyrir gesti) á efri hæðinni og 2 baðherbergi. Stór stofa og samliggjandi eldhús og eitt baðherbergi á neðri hæðinni. Svalir og stór garður á bakvið og fyrir framan.



Það er víst ágætis útsýni úr garðinum og af svölunum okkar.

Eftir að við vorum búin að henda töskunum inn þá fórum við í Harvey Norman (3. ríkasti maður Ástralíu) og keyptum okkur rúm.

Eins og ástralir segja þá var þetta "no worries" eða ekkert mál !! Verð þó að viðurkenna að við vorum gjörsamlega búin eftir þetta - Hótel Satans var algjör paradís eftir erfiða daga. Jæja þá er jr. vaknaður.

6 Comments:

  • Áfram með þetta. Ég er á leiðinni la la la alltaf á leiðinni !!!!

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:36 e.h.  

  • Verð að fá að sjá mynd af Jr. Down under.

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:38 e.h.  

  • Mig vantar heimilisfangið hjá ykkur svo ég geti sent ykkur póstkort frá France

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:48 e.h.  

  • Gaman að heyra frá ykkur.
    Hvernig snýst vatnið í klósettinu þegar þið sturtið niður?

    Kamloops kveðja

    By Blogger Unknown, at 10:36 f.h.  

  • Frábært að geta fylgst svona með ykkur. Hlakka til að lesa meira
    kv Marín

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:28 e.h.  

  • Hey ég var búin að kommenta áður en það birtist ekki, held að Oz (eins og heimamenn kalla Ástaralíu) líki ekki við mig.Hvernig væri að koma með nokkrar myndir innan úr fína húsinu!!

    By Blogger Asta Gudrun, at 8:29 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger