Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

föstudagur, febrúar 25, 2005

Hello
Þá er ég líka komin með aðgang að blogginu. Best ég komi með stutta útgáfu af því sem er búið að gerast síðan við fórum að heiman.
Við flugum til London 3. febrúar og vorum þrjá daga hjá vinum okkar sem búa rétt utan við London. Takk kærlega fyrir okkur Jói, Inga og Kristján Ingi. Við skoðuðum bæinn þeirra St. Albans og fórum einu sinni inní London. Þó heimþráin hafi verið á versta stigi þarna var þetta mjög notalegur tími.




Næst var það Singapore sem við heimsóttum. Tókum stutt 12 tíma flug þangað. Það var nú mun skárra en mig hefði grunað. Við gistum á drauma hóteli og skoðuðum þessa drauma borg í 5 daga. Margt skemmtilegt að sjá þarna, ótrúlega hrein og skemmtileg á allan hátt. Fengum okkur Singapore Sling á Long Bar sem var hinum megin við götuna frá hótelinu okkar. Fengum að taka glasið út því við vorum með barnið með okkur - stálum svo náttúrulega glasinu. Veðrið var gott í Singapore og ágætis æfing fyrir Perth. Við keyptum ekki mikið þarna því við lentum inní Kínversku nýári. Fengum bara flugeldasýningar og dansandi dreka í staðin fyrir búðaráp.



Jr. lærði nýtt orð í Singapore - ljónið. Enda þýðir Singapore eitthvað á þá leið borg ljónsins.
Við kvöddum Singapore að föstudagskvöldi 11.febrúar og héldum yfir til eyjunnar fögru. Við vorum ekki beint hress þegar við bókuðum okkur inn á Hótel Satans eins og maðurinn minn hefur líst því áður. Ég held að heimþráin hafi farið á það stig þegar þangað kom að við hefðum farið heim hefði það verið í boði. Daginn eftir leigðum við bíl og hringdum í einu manneskjuna sem við vissum að talaði íslensku og þekkti Perth meira en við - aka Auðbjörgu. Hún gaf okkur góð ráð um íbúðaleit. Til að gera langa sögu stutta fluttum við inní húsið okkar á miðvikudegi. Keyptum rúm og borðuðum kvöldmatinn af ferðatösku.


Síðan þá höfum við verið að kynnast Perth og líkar okkur vel það sem við sjáum. Ástralir eru mjög vinalegir og hjálplegir. It´s all good. Curtin (skólinn minn) kemur vel út. Hlakka til að byrja þar á mánudag. Fysti tíminn er Sexology hjá Gareth Merriman. Og hann er mjög merry.
Jæja meira næst,
Áslaug en ekki asslag

2 Comments:

  • Gaman að sjá að allt gengur vel, knús og kossar.
    Aldís

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:19 f.h.  

  • Hehe frábær myndin af feðgunum með dinner á ferðatöskunni. Elsku Assslag mín spurning um að finna sér nafn til að losna undan þessu nafni hehe. Mjög vinsælt meðal Íslendinga að vera kallaðir upphafsstöfunum þínum, en veit ekki hvort AK virki (hljómar svolítið eins og AKA hehe). Well Idol í kvöld, hugsum til þín sæta. Kv, Ásta Guðrún

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:07 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger