laugardagur, mars 05, 2005
Bar-B mate. Jæja við erum búin að fjárfesta í grilli hérna. Enda alltaf veður til að grilla og svo er þetta stór þáttur í Ástralskri menningu að grilla. Thor fór í K-mart og keypti risa grill á tilboði því það er að koma haust hjá okkur. Við hjónin klóruðum okkur svo fram úr því að setja gripinn saman.
 Síðan þá höfum við grillað kvölds og morgna.
 Í gærkvöldi var svo haldin grillveisla með íslensku stelpunum, Auðbjörgu og Fjólu, sem við þekkjum hérna og norskum kærasta annarrar, Erlend. Við sátum svo úti til klukkan eitt um nóttina að spjalla. Því við erum líka búin að kaupa útihúsgögn og getum því núna nýtt garðinn.
 Í kvöld verður svo frumraunin með shrimp on the Bar-B. Lífið er að komast í fastar skorður hjá okkur. Maður er ekki eins sterkt með tilfinninguna að maður sé bara í fríi hérna. Erum farin að þekkja hverfið okkar, búin að finna slátrara sem við viljum verlsa við, stórmarkað sem er hagstæður o.s.frv. Ég er farin að fatta að ég þarf að læra og ég er meira að segja búin að klára fyrsta skólaverkefnið mitt. Við tókum smá skoðunarferð um Perth síðustu helgi og nutum þess að vera í fríi. Skoðuðum tvær strendur Perth, af ég veit ekki hvað mörgum en þær eru nokkrar. Fórum á markaði í Subiaco og Fremantle sem eru hverfi hérna í borginni. Eyddum öllum sunnudeginum í Fremantle, með Auðbjörgu, Erlend og Fjólu. Skoðuðum mannlífið og markaði. Auðvitað stoppuðum við svo í einni skóbúð :) Eigiði góða helgi Áslaug

|
2 Comments:
Maður er nú hálft í hvoru að pæla í að kíkja í grill :) Er ekki ábyggilega ískaldur Fosters með ?
By
Unknown, at 7:37 f.h.
Hahahahaha það er að koma haust hjá ykkur en sumar hjá okkur :D
Afhverju versluðu þið ekki Kraft galla á alla fjölskylduna :O
Æjj nei var búinn að gleyma því að hávetur í perth er um 4° heitari að meðaltali en heitasti mánuðurinn á Íslandi :o(
Bara snilld að það skuli vera útsölur á grillum því það er komið haust... Ég skil það nú samt að það sé ekki hægt að grilla í 17° að meðaltali... NOT :D
By
Nafnlaus, at 8:08 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home