laugardagur, mars 05, 2005
Besti matur á suður heimshveli
Verð bara að segja ykkur öllum hvað við borðuðum góðan mat í kvöld. Við keyptum grænar rækjur í gær og prófuðum að matreiða þær á grillinu. Þær voru alveg eins og maður vill hafa þær. Fullkomnar. Svo grilluðum við Ástralskt naut (rump steik) á New York vísu. Nautakjöt með gráðosti ofan á. Salat og pönnusteiktar kartöflur og hvítlaukssósa. Þetta var það gott að við gátum varla talað við matarborðið. Fengum okkur svo göngutúr meðfram Swan River eftir matinn. Áin var spegil stétt og miðborgin speglaðist í henni. Er við gengum þarna horfðum við á Kings Park upplýstan í gulu, rauðu og grænu ljósi. Hver vill ekki búa við svona aðstæður. Nb ég var úti að labba kl 19:30 á hlýrabol og táslunum.
Við erum alla veganna búin að útnefna máltíðina í kvöld "Velkomin til Ástralíu" Þannig þið sem nennið að leggja ferðina á ykkur fáið að prófa. Södd og sæl, Áslaug og Thor

|
2 Comments:
OH MY GOD!!! Þetta grill er náttúrulega bara geggjað! Shæt. Þetta lítur ekkert smá vel út hjá ykkur, algjör draumur. Ég sendi þér Idol fréttir fljótlega skvís.
By
Nafnlaus, at 2:32 f.h.
Issshhhh þetta er nú ekkert, ég fór nú í mötuneyti Símans í hádeginu og fékk mér Bayone skinkubita, svo labbaði ég út í bestu sjoppu landsins hér við hliðina á í um 4°hita og enginn ofankoma, það var mjög sweeet... svo koma einhverjar svona sögur og eyðileggja þetta góða mojo sem maður var kominn í... maður fer næstum að gráta... :'(
Hvað segið þið um að stofna bara Íslendinga kommúnu þarna úti í Perth :D.
Nú skilur maður allavega hvað Íslendingar voru að spá þegar þeir fluttu hér í stríðum straumum til Ástralíu hér á árum áður!!!
Endilega komið með einhverjar neikvæðar sögur svo maður drekki sér ekki í þunglyndi í hvert skipti sem maður heimsækir síðuna ;)
Nei, nei segji bara svona... Hafið það sem allra best ;)
By
Nafnlaus, at 8:01 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home