Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

miðvikudagur, mars 02, 2005

Hæ allir,
Ákvað að koma með smá fullorðins blogg. Veit að barnið er sætt en síðustu færslur hafa bara verið myndir af Thor að gera hitt og þetta.
Skólinn er byrjaður hjá mér, mér líst vel á þetta allt saman. Ótrúlega spennandi að vera loksins komin á mína hillu. Krakkarnir í bekknum eru skemmtilegir og koma frá nokkrum löndum. Nokkrir Ástralir, ein frá Indlandi, ein frá Kanada, tvö frá USA og svo ég ein frá Íslandi. Við erum líka á ólíkum aldri þannig að það ætti að vera hægt að koma með mörg sjónarmið og skemmtilegar umræður í tímum. Tímarnir eru mikið þannig að nemendur eiga að tjá sig, flytja verkefni og ræða um námsefnið. Ég á að skila inn fyrsta verkefninu í næstu viku. Maður á ekkert að sitja auðum höndum og lesa svo bara fyrir próf.
Við erum að verða búin að koma okkur fyrir hérna á Coode stræti. Allir eiga rúm, við eigum borðstofuborð, sjónvarp, hirlsu undir það, sófaborð, sófinn er á leiðinni. Mjög Ástralskst grill, útihúsgögn og bíl. Erum búin að vera mjög dugleg að viða að okkur því sem við þurfum. Bráðum koma svo myndir af þessu öllu og nýja heimilinu.
Segi ykkur meira næst,
Áslaug

1 Comments:

  • Hæ öll sömul. Frábært að heyra að þér lítist svona vel á skólann, já ég er sammála því að nú ertu á réttri hillu....enda búin að tala um þetta nám síðan við vorum á gelgjunni. Ég sit hér og bíð eftir að barnið fæðist og þá sendi ég þér nú línu og monta mig smá. Eydís Ósk er með heimasíðu sem þú getur kíkt á www.barnaland.is/barn/2244 og meilið mitt er mariao@itr.is, endilega sendu mér línu svo að ég fái meilið þitt. Verum í bandi og hafið það gott :-)
    Kveðja María

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:24 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger