Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

sunnudagur, mars 13, 2005 Jaws, Finding Nemo & Teenage Mutant Ninja Turtles

Ég fór með jr. á leikvöllinn í morgun og lékum okkur í sandkassanum og "víííí" eins og hann kallar rennibrautina í 2 tíma. Síðan fórum við heim og fengum okkur hádegismat og jr. lagði sig. Áslaug lærði um morguninn og þegar jr. vaknaði þá fórum við öll á sædýrasafnið hérna í Perth. Það var bara nokkuð gaman að sjá krókódíla, risa skjaldbökur, hákarla, risa skötur og önnur kvikindi eins og allt castið úr Finding Nemo.

Við löbbuðum í gegnum gler göng í risa stóru fiskabúri þar sem að hákarlar voru að synda við hliðina á manni. Jr. ákvað að kalla sköturnar Masi og vildi meina að þær væru að fara lúlla. Ef þið viljið þá er hérna stutt myndband af einni skötu.

Eftir sædýrasafnið fórum við á matsölustað á risa bryggju sem er alveg við safnið - en á bryggunni er verslunarmiðstöð með veitingastöðum, búðum, bíla- og bátastæðum. Verst að eiga ekki bát.

Þessar mynd er tekin frá Fish and Chips staðnum sem við borðum djúpsteiktar rækjur, djúpsteiktan smokkfisk og franskar. Eins og margir vita þá er ég mikill áhugamaður um máva og viti menn það ákvað einn einfættur að kíkja á borðið við hliðina á okkur. Jr. kallaði bíbí og ég bölvaði það að vera ekki með haglabyssuna.

Síðan fyrir þá sem kíkja á þessa síðu til að fylgjast með ævintýrum Thors yngri þá er hann kominn með allar tennurnar.

Thor ætlar að vera allan daginn á morgun í leikskólanum, hann talar um ís uppúr svefni og uppáhaldsmyndin hans er Söngvaborg 3.

3 Comments:

  • VÁ hvað hann er orðinn stór drengurinn, vel tenntur :D
    Snilldarmyndband með skötunni, engin smá smíði. Gaman líka að heyra aðeins raddirnar ykkar þar inn á :D

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:29 f.h.  

  • Til hamingju med tennurnar litli Thor Kossar og knus fra france

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:33 e.h.  

  • Rosa gaman að fylgjast með lífinu "down under". Þið hafið það greinilega konunglegt.
    Kveðja frá Köldu-Köben,
    Hildur, Bjarki og Hrafnkell Ari

    By Anonymous Nafnlaus, at 11:27 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger