laugardagur, mars 19, 2005
Lazy saturday
Ástralir eru þekktir fyrir að drekka mikinn bjór. Á sunnudögum taka þeir sunday session - en þá fara þeir á barinn klukkan í kringum hádegið og drekka bjór til fjögur. Eftir það fara þeir heim og grilla og mæta síðan góðir í vinnuna daginn eftir.
Þeir eiga mikið úrval af góðum bjór hérna og við erum búin að smakka nokkrar tegundir og er bjórinn hérna sérstaklega góður í miklum hita. Ástralir eru hressir og svolítið skrítnir. T.d. heitir Burger King í Ástralíu "Hungry Jacks" og Opel bílategundin kallast Holden og er framleiddur í Ástralíu. Segja "no worries" við öll tækifæri og kalla mann "mate".
Í Ástralíu eru 5000 baðstrendur og klukkan 9 í morgun skelltum ég og Thor jr. okkur á eina með norska vini okkar Erlend (kærasti Auðbjargar sem býr í Perth). Thor var frekar ánægður með ströndina og vildi helst hlaupa út í sjó. Ég þurfti því að passa hann svolítið vel.
Hérna eru nokkrar myndir.
 Hérna er yngsti brimbrettagaurinn á ströndinni.
 30 sek. seinna var þessi dottinn á andlitið.
 Hérna er útsýnið í hina áttina
 Thorsi frekar ánægður í hvert skipti sem hann fór í vatnið.
Thor jr. kallar ströndina núna búmm búmm. Í hvert skipti sem að aldan skellur heyrist smá hvellur. Eftir nokkra tíma á ströndinni keyrðum við til Subiaco og fengum okkur pizzu og Pepsi á ítölskum pizza stað. Núna er erfiðast að ákveða hvort að maður eigi að grilla kjúkling eða nautakjöt í kvöld. Lazy saturday í dag - spurning hvort að það verður sunday session á morgun?

|
1 Comments:
Ohh ekkert smá handsome surfer á ströndinni. Þetta lítur enn út eins og frí hjá ykkur héðan séð, veit ekki hvort ég venjist einhvertíman því að þið getið skroppið á ströndina si svona :D
By
Nafnlaus, at 5:54 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home