sunnudagur, mars 06, 2005
Mustang Sally
Þegar við vöknuðum í morgun sáum við þetta hinum megin við götuna.
Það var sem sagt Mustang félag vestur Ástralíu með bílasýningu í garðinum sem við búin við, Sir James Mitchell Park. Við drifum okkur því náttúrulega út og skoðuðum bílana. Ótrúlega vel við haldnir bílar frá því að Ford fór að framleiða Mustang árið 1964. Flestir voru árgerð 1964-1970 eitthvað svoleiðis. Mér varð strax hugsað til Valla bróður sem er mjög mikill Mustang áhugamaður. Ég get skráð þig í félagið ef þú vilt bróðir, maður þarf ekki að eiga bíl til að vera í því. Bara hafa áhuga á fornbíla sporti. Tók líka myndir ofan í húddin til að sýna pabba vélasafnara.  Við spókuðum okkur þarna um og fengum okkur grillaða pylsu og sátum í grasinu að horfa á heilu fjölskyldurnar merktar bílaframleiðandanum. Og tókum myndir af drossíunum sem við vildu eiga, en eigum ekki. Menn voru þarna að tala um alvöru amerískt stál og spila lög tengd Mustang. Alvöru áhugamenn en enginn þó tattoveraður sportinu. Sunnudagskveðja, Áslaug

|
2 Comments:
SHÆT truflaðir bílar. Verð nú samt að segja að dvölin ykkar þarna úti hljómar enn eins og frí....ekki amalegt :D Lofa Idol fréttir í kvöld
By
Nafnlaus, at 8:12 e.h.
kvedja fr Monako erum her i furstaveldinu drekkum raudvin vid sjavarsiduna og horfum a snekkjurnar Au revoir
By
Trína, at 1:22 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home