föstudagur, mars 11, 2005
Tíminn flýgur hérna down under. Skólinn er kominn á fullt, ég er búin að læra fullt af nýjum dónaorðum. Var í tíma þar sem við áttum að skrifa niður í hópum orð sem tengjast kynlífshegðan. Það kom margt fyndið fram þarna. Tilgangurinn var sem sagt að láta okkur venjast því að tala um kynlíf, finna út hvað okkur finnst í lagi að segja og svo við skiljum framtíðar skjólstæðinga okkar þegar þeir eru að lýsa gjörðum sínum. Ég var náttúrulega beðin um að segja og skrifa nokkur íslensk orð. Alltaf höfð sem svona til sýnis nemandi. Var líka orðin þekkt innan skólans (School of Public Health) á meðal kennarana áður en ég kom hingað. Allir vita að ég er til þó þeir hafi ekki hitt mig. Flestir segja við mig "oh your the girl from Iceland" næst á eftir kemur "hvernig gengur að venjast hitanum, er ekki alltaf kalt á Íslandi". En það er kannski alveg skiljanlegt, flestir hafa aldrei hitt neinn frá Íslandi. Thor litli er aðeins farinn að venjast leikskólanum. Sarah (leikskólakennari) gaf honum súkkulaði síðast þegar hann fór heim því hann stóð sig svo vel. Thor kyssti hana náttúrulega á kinnina fyrir, en var mjög feiminn. Hann er enn með afa sinn á heilanum. Hann á einn lítinn kall frá Fisher-Price sem hann kallar afa. Því litli kallinn er með rautt hár. Hann er líka enn mjög hrifin af ljónum. Við Thor fórum einmitt í dýragarðinn hérna í Perth í morgun. Hann er í göngufæri frá okkur. Þar sáum við ljón, sem fóru að vera mjög góð við hvort annað þegar við vorum að skoða þau. Vonandi sjáum við ljónaunga þegar við förum næst. Við sáum líka kengúrur, þær höfum við ekki séð áður. Nashyrninga, snáka og margt fleira. Blessunarlega höfum við ekki séð snáka hérna áður. Höfum bara séð nokkra maura, köngulær, flugur, engisprettur og tv0 kakkalakka. Bara köngulærnar vilja vera inni hjá okkur. En ryksugan sér um þær. Ég verð að segja að lífið hinum megin við miðbaug er gott við okkur. Já og ekki má gleyma að vatnið fer öfugan sólargang þegar sturtað er niður í klósettinu. Hafið það gott, Áslaug

|
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home