Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

Blogg

sunnudagur, apríl 24, 2005 Sumardagurinn fyrsti down under!

Travelling in a fried-out combie
On a hippie trail, head full of zombie
I met a strange lady, she made me nervous
She took me in and gave me breakfast
And she said,

"Do you come from a land down under?
Where women glow and men plunder?
Can't you hear, can't you hear the thunder?
You better run, you better take cover."

Svona hljóma fyrstu 2 erindin í þjóðsöng Ástrala sem er spilaður mjög oft í útvarpinu hérna. Ástralska ríkið fékk hljómsveitina "Men at work" til að gera þjóðsönginn árið 1982. Ástralir hafa ágætis tónlistarsmekk en spila frekar gömul lög í útvarpinu hérna. Það mætti halda að þeir væru pínulítið eftirá. Kannski er það bara bundið við Perth - maður veit það ekki - við eigum eftir að heimsækja Austurströndina.

Ég og yngri skelltum okkur á bílasýningu fyrir helgi og skoðuðum glæsikerrur. Eftir að ég leyfði yngri að setjast inn í einn bíl þá vildi hann fara inní þá alla.



Honum fannst blæjubílarnir skemmtilegir.



Og einnig finnst honum mótorhjól og vespur spennandi.


Hann fékk ekki að setjast í alla bílana sem hann vildi.

Þannig að það þurfti að ná honum í kerruna og Huyndai kynningarstúlkurnar mútuðu honum til setjast.


Vinsælasti bíllinn hérna í Perth er einhverskonar pickup. Það er ekkert smá mikið af þessum bílum hérna og menn slefa yfir þessu. Takið eftir "sítt af aftan" gaurnum. Ég tók mynd af þessu fyrir Adda Sig.


Hérna er svo 5 sæta útgáfan af pallbílnum. Ætli skottið sé ekki fyrir brimbrettið eða veiðigræjur.

Á fimmtudaginn var sumardagurinn fyrsti heima á Íslandi en hérna er byrjað að hausta. Laufin eru byrjuð að falla í 25 stiga hita. Núna eru allir að keppast um að gróðursetja vegna þess að það rignir víst svolítið hérna á veturna. Ég er ekkert voðalega spenntur yfir vetrinum en það kemur ekki frost hérna og meðalhitinn á að vera 18 gráður. Það verður samt leiðinlegt að missa af íslenska sumrinu.

Áslaug tók fyrsta prófið sitt hérna á fimmtudaginn og henni gekk vel. Yngri og eldri fóru og keyptu blómavasa og blóm handa henni vegna þess að hún var svo dugleg að læra. Síðan var að sjálfsögðu haldið uppá það með því að grilla nautakjöt og opnuðum eina rauðvínsflösku sem keypt var í vínsmökkunarferðinni fyrir nokkrum vikum.



Áslaug er núna komin í viku frí frá skólanum og við ætlum að nota tímann til að fara og skoða Penguin Island.

Um daginn var mér boðin vinna í 2 mánuði við að skoða ástralska markaðinn fyrir íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Betware. Ég tók því boði og byrjaði í síðustu viku.

Á eftir erum við að fara í grill (hvað annað) hjá Gunnari Víking og konunni hans Margaret.

Áslaug var einnig að setja inn fleiri myndir á heimasíðuna sína.

Ég var síðan að hugsa um að setja uppskriftarhorn á síðuna og hafa grillréttina þar.

föstudagur, apríl 15, 2005 Sjónvarpsgláp og hið fullkomna líf.

Akkurat þessa stundina er ég að horfa á Mávahlátur á SBS sjónvarpsstöðinni hérna í Ástralíu.

In the 1950s, a beautiful and mysterious widow named Freyja returns home from America to a village in her native Iceland. The entire town is intrigued by Freyja and things come to a head when the enlightened Freyja challenges the established order, stirring the women of the town up to make a stand against their men. Drama Agúst Guðmundsson Margrét Vilhjamsdóttir, Ugla Egilsdóttir, Hilmir Snær Guðnason 2001, IcelandM, violence, adult themes, sex references.

Það er jafn fáránlegt að sjá þetta hérna og þessi mynd er leiðinleg. Mjög !

Meira um sjónvarpsgláp: Um daginn vaknaði ég klukkan 6 um morguninn til þess að fá skammtinn minn. SBS sýnir meistaradeildina hérna. Ég horfði á mjög góðan leik Liverpool - Juventus þar sem að Liverpool sýndi snilldartakta. Loksins fá Liverpool vinir mínir eitthvað til að gleðjast yfir eftir nokkurra ára píslargöngu. Að vísu mun ég halda með Chelsea í næsta leik.

Á morgun er okkur boðið í mat hjá Ella og Kollu. Síðan eftir það ætla ég að skreppa í "Casino" með Erlend og Óla. Þar á að leggja undir aleiguna en skilja nógu mikið eftir þannig að við getum keypt okkur húsbíl og ferðagrill. Síðan verður bílnum bara lagt hjá skólanum hennar Áslaugar. Áslaug klárar námið og ég safna sítt að aftan og fæ mér bjórvömb. Lífið í húsbílnum verður síðan hið fullkomna líf.

Sjáum hvort að Áslaug samþykkir þetta ekki þegar ég ber þetta undir hana.

Jæja! Freyja og einhver gaur voru að trúlofa sig í Mávahlátri. Ef einhver veit hvernig þessi mynd endar (sem ég efast um) þá má segja mér það. Ég ætla að skipta um stöð núna - highlights úr Ástralska fótboltanum er að fara að byrja.

Bless í bili.

þriðjudagur, apríl 12, 2005 Mastergráða í grilli - fer kannski í Doktorinn

Við hjónin erum víst búin að vera léleg að blogga. En það er samt búið að vera nóg að gera hjá okkur undanfarið. Höfum bara ekki komist í það að blogga.

Um daginn fengum við kvöldpössun þegar þau Auðbjörg og Erlend voru svo elskuleg að passa Thor. Við fórum út að borða á "The Fishy Affair" í Northbridge (skemmtistaða og veitingastaða hverfið í Perth) með nokkrum "international" stúdentum í skólanum hennar Áslaugar. Áslaug fékk sér kengúru og ég fékk mér sverðfisk. Síðan fórum við á standup kvöld og horfðum á 9 ástralska grínista fara með gamanmál. Þetta var mjög skemmtilegt kvöld og tókst okkur báðum að hlaða batteríin. Maður finnur svolítið fyrir því hversu þægilegt það var að fá pössun hjá afa og ömmu.

Áslaug er á fullu í skólanum og henni gengur mjög vel. Enda er hún búin að vera mjög dugleg að læra.
Ég er búinn að vera að reyna að selja íslenskan hugbúnað hérna úti. Það gengur frekar hægt enda taka svona sölur yfirleitt langan tíma. Það tekur tíma að finna réttu aðilana og einnig að læra inn á markaðinn. Búinn að fara á nokkra fundi hér og þar um Perth og kynnast einhverju fólki í þessum bransa. Ef þetta gengur ekki upp þá verður maður reynslunni ríkari og fer þá bara á vinnumarkaðinn hérna. Það vantar eflaust fólk til þess að grilla í veislum. :)

Thor jr. er "labbi" óður. Við erum með garð fyrir framan húsið okkar sem er svipað stór og miklatún. Thor vill fara að "labbillabb" einu sinni á dag. Þá tekur hann í höndina á pabba sínum og dregur hann út. Síðan er farið út á tún með boltann og hann sparkar boltanum á undan sér þangað til hann verður þreyttur. Þá segir hann "taka" og pabbi hans á að labba með hann um allt og helst niður að á. Þegar þangað er komið vill hann fara að "renna" í rennibrautinni. Á leiðinni heim vill hann labba og fara út á götu og er ekki alveg að sætta sig við það að hann megi það ekki. Ég get ekki beðið eftir því að hann geti farið að hlaupa eða þannig :). En hann er farinn að æfa sig eins og sést á þessu myndbandi. Maraþon frá eldhúsi yfir í stofuna (20 mb.).

Við erum búin að rekast á nokkuð marga Íslending hérna. 2. apríl hittust átta íslendingar heima hjá okkur og grilluðu og núna á sunnudaginn komu 15 fullorðrnir til okkar.
Þar sem ég er að taka mastersgráðu í grilli núna þá grillaði ég ofan í alla. Grillið er nógu stórt til þess að grilla mat ofan í 15 manns í einu.
Og þar sem að allir fara á síðuna okkar til að sjá myndir af mér þá er ein hérna.

4 kg. á kjúklingabringum á grillinu.
og einn ískaldur Cold til að væta kverkarnar.

Thor jr. er búinn að vera duglegur á leikskólanum og er farinn að tjá sig við leikskólakennarana. Ein heldur því fram að hann hafi sagt nafnið hennar. Hann virðist vera að aðlagast ágætlega og okkur finnst ekki eins erfitt að skilja hann eftir núna eins og fyrstu dagana hans þarna.


Jæja - biðjum að heilsa ykkur héðan í bili.

Powered by Blogger

Eldra blogg