|
þriðjudagur, apríl 12, 2005 Mastergráða í grilli - fer kannski í DoktorinnVið hjónin erum víst búin að vera léleg að blogga. En það er samt búið að vera nóg að gera hjá okkur undanfarið. Höfum bara ekki komist í það að blogga.Um daginn fengum við kvöldpössun þegar þau Auðbjörg og Erlend voru svo elskuleg að passa Thor. Við fórum út að borða á "The Fishy Affair" í Northbridge (skemmtistaða og veitingastaða hverfið í Perth) með nokkrum "international" stúdentum í skólanum hennar Áslaugar. Áslaug fékk sér kengúru og ég fékk mér sverðfisk. Síðan fórum við á standup kvöld og horfðum á 9 ástralska grínista fara með gamanmál. Þetta var mjög skemmtilegt kvöld og tókst okkur báðum að hlaða batteríin. Maður finnur svolítið fyrir því hversu þægilegt það var að fá pössun hjá afa og ömmu. Áslaug er á fullu í skólanum og henni gengur mjög vel. Enda er hún búin að vera mjög dugleg að læra. Ég er búinn að vera að reyna að selja íslenskan hugbúnað hérna úti. Það gengur frekar hægt enda taka svona sölur yfirleitt langan tíma. Það tekur tíma að finna réttu aðilana og einnig að læra inn á markaðinn. Búinn að fara á nokkra fundi hér og þar um Perth og kynnast einhverju fólki í þessum bransa. Ef þetta gengur ekki upp þá verður maður reynslunni ríkari og fer þá bara á vinnumarkaðinn hérna. Það vantar eflaust fólk til þess að grilla í veislum. :) Thor jr. er "labbi" óður. Við erum með garð fyrir framan húsið okkar sem er svipað stór og miklatún. Thor vill fara að "labbillabb" einu sinni á dag. Þá tekur hann í höndina á pabba sínum og dregur hann út. Síðan er farið út á tún með boltann og hann sparkar boltanum á undan sér þangað til hann verður þreyttur. Þá segir hann "taka" og pabbi hans á að labba með hann um allt og helst niður að á. Þegar þangað er komið vill hann fara að "renna" í rennibrautinni. Á leiðinni heim vill hann labba og fara út á götu og er ekki alveg að sætta sig við það að hann megi það ekki. Ég get ekki beðið eftir því að hann geti farið að hlaupa eða þannig :). En hann er farinn að æfa sig eins og sést á þessu myndbandi. Maraþon frá eldhúsi yfir í stofuna (20 mb.). Við erum búin að rekast á nokkuð marga Íslending hérna. 2. apríl hittust átta íslendingar heima hjá okkur og grilluðu og núna á sunnudaginn komu 15 fullorðrnir til okkar. Þar sem ég er að taka mastersgráðu í grilli núna þá grillaði ég ofan í alla. Grillið er nógu stórt til þess að grilla mat ofan í 15 manns í einu. Og þar sem að allir fara á síðuna okkar til að sjá myndir af mér þá er ein hérna. ![]() 4 kg. á kjúklingabringum á grillinu. og einn ískaldur Cold til að væta kverkarnar. Thor jr. er búinn að vera duglegur á leikskólanum og er farinn að tjá sig við leikskólakennarana. Ein heldur því fram að hann hafi sagt nafnið hennar. Hann virðist vera að aðlagast ágætlega og okkur finnst ekki eins erfitt að skilja hann eftir núna eins og fyrstu dagana hans þarna. ![]() Jæja - biðjum að heilsa ykkur héðan í bili. |
6 Comments:
Mikið er gaman að sjá mynd af grillmeistaranum. Verst að geta ekki smakkað. Amma og afi í Leirutanganum væru sko alveg til í að passa. Aldrei að vita nema að það gerist bráðum.
Kossar og knús
Leirutangaliðið
By
Nafnlaus, at 10:52 e.h.
Videoið sést ekki:(
En snilldar grill. Takið þið það ekki bara með heim og haldið uppi sama hætti hér á fróni? ;)
By
Nafnlaus, at 3:36 f.h.
Jú það eru hreinar línur að grillið kemur til Íslands í lok dvalar þess hérna. Veit ekki hvort það fer heim með Eimskip þó þar sem þeir eru ekki enn búnir að koma kössunum okkar til Perth. Þeir áttu að vera hér 16. mars. Hlökkum til að fá dót og sérstaklega grillsettið okkar og töngina frá tengdó sem við höfum saknað mjög.
Kveðja,
The lady of the house (Áslaug)
By
Aslaug, at 1:22 e.h.
Ég sé ekki ennþá videoið, það kemur bara að síðan finnist ekki :(
By
Nafnlaus, at 5:54 e.h.
Prófaðu þá núna - það ætti að vera hægt að gera Save As...
By
Thor, at 12:15 f.h.
Gaman að heyra raddirnar ykkar á vídjóinu.
By
Nafnlaus, at 1:27 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home