Ég og jr. vöknuðum eldsnemma um daginn til að horfa á Liverpool-Chelsea. Þar sem jr. á að verða knattspyrnumaður/lögfræðingur þá er eins gott að venja hann við að horfa á fótbolta. Ekki nennir Áslaug að horfa á þetta þannig að það er fínt að fá smá félagskap. Við förum reglulega út að labba með fótboltann hans þannig að hann geti æft sparkið. Jr. var bara nokkuð ánægður með fótboltann og benti á sjónvarpið og sagði: "Bolti, gras, labba, sparka". Hann náði íslensku íþrótta þulunum mjög vel - en þeir segja varla mikið meira en þetta. Úrslitin voru vonbrigði og ég öskraði t.d. þegar Eiður brenndi dauðafæri á síðustu mínútunni. Áslaug vaknaði við það og hélt að eitthvað hafi komið fyrir.
Ég skellti mér á pöbbarölt um daginn með Finni og þá meina ég um daginn - byrjuðum klukkan 14:00. Finnur er í tölvubransanum hérna og búinn að búa í Ástralíu í nokkur ár. Hann er að vinna núna hjá Fosters og vildi endilega sýna mér pöbbana og fræða mig um bjórana hérna í Perth. Við fórum á 7 pöbba og fengum okkur 8 tegundir. Þetta var mjög skemmtilegt og núna er ég búinn að kynnast mikið af góðum bjórum og pöbbum. Ég er kominn með uppáhalds og hann heitir Little Creatures. Little Creatures er bruggaður í Fremantle sem er mjög skemmtilegur bær við ströndina vestan við Perth. Fremantle er hippastaður með mjög skemmtilegum týpum. Fremantle stundum kallaður höfuðborg fish and chips í Ástralíu en þarna er risa veitingastaður sem selur bara fish and chips.
Það er mjög gaman að skella sér til Fremantle og við erum búin að fara þangað nokkrum sinnum. Það er t.d. mjög gaman að heimsækja brugghús Little Creatures. Þetta er samt ekki bara brugghús heldur líka bar og veitingastaður. Við fjölskyldan skelltum okkur þangað fyrir stuttu og fengum okkur grillaðar rækjur vafðar í hráskinku, eldbakaða pizzu með hráskinku og Little Creatures Pale Ale (besti bjór í heimi). ATH þeir sem koma í heimsókn til okkar verða neyddir í skoðunarferð þangað það þýðir ekkert að mótmæla því !!!
Hérna er brugghúsið.
Það voru ekki margir á staðnum enda mættum vil klukkan 11 um morguninn. Hipparnir voru samt að týnast inn og staðurinn fyllist víst í hádeginu. Thor vildi skella sér yfir til pabba. Jr. er ekkert sérstaklega hress þegar foreldrarnir vilja bara taka myndir af honum. Þarna er helmingurinn af eldhúsinu og þar sem bjórinn er bruggaður. Það er stærðarinnar bar þar sem maður getur keypt sér kassa af bjór ef maður er mjög þyrstur.
Hérna er önnur mynd fyrir framan brugghúsið/veitingastaðinn/pöbbinn en fyrir aftan er bátastæði þar sem fólk getur lagt bátnum og farið og fengið sér bjór. Þegar við ákváðum að fara þá var svo heitt að ég neyddist til að kaupa einn kassa :).
Annars er líka í fréttum að við vorum að fá kassana okkar en þeir voru bara 2 og 1/2 mánuð. Eitthvað moðhausa flutningsfyrirtæki sem starfar með Eimskip flutti kassana okkar frá Singapore til Melbourne og þaðan til Perth. Jr. var mjög ánægður með að fá bangsana og eldhúsið sitt. Eimskip voru almennilegir og ætla að gefa okkur afslátt af búslóðarflutningum þegar við flytjum aftur heim í staðinn fyrir þetta.
Ætli einn gámur af Little Creatures teljist sem búslóð?
Cheers mate! Get ekki ímynað mér annað en að kassi af bjór geti kallast búslóð Thor minn, hlakka til að smakka fenginn. Takk fyrir frábært klukkustunda spjall í morgun/kvöld (eftir hvor megin á hnettinum fólk er) Guð blessi tæknina!! Hlakka til að heyra frá þér aftur Áslaum mín. Góða helgi :D
2 Comments:
Cheers mate! Get ekki ímynað mér annað en að kassi af bjór geti kallast búslóð Thor minn, hlakka til að smakka fenginn.
Takk fyrir frábært klukkustunda spjall í morgun/kvöld (eftir hvor megin á hnettinum fólk er) Guð blessi tæknina!!
Hlakka til að heyra frá þér aftur Áslaum mín.
Góða helgi :D
By
Nafnlaus, at 10:54 e.h.
mmmmmm... beer!!!
By
Nafnlaus, at 10:45 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home