Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

miðvikudagur, maí 25, 2005 Nick Cave

Við hjónin skelltum okkur á Nick Cave & The Bad Seeds tónleika á sunnudaginn og skemmtum okkur mjög vel. Warren Ellis fiðluleikarinn í Bad Seeds reddaði okkur miðum og "back stage" aðgangi.

Þeir tóku helling af lögum af nýju plötunni auk þess að taka gamla slagara eins og: "The Weeping Song", "Red Right Hand", "Do you love me", "Deanna", "The Ship Song", "The Mercy Seat" ofl. Þetta voru stuð tónleikar og greinilegt að hljómsveitin eldist vel.

The Darling Downs hituðu upp fyrir tónleikana og þeir komu nokkuð vel út.

Við skelltum okkur baksviðs eftir tónleikana til að bragða á rauðvíni og hitta hljómsveitina. Ég spjallaði aðeins við Nick og spurði hvort að hann vildi ekki halda aðra tónleika á Íslandi. Hann hafði áhuga á því. Það var mjög mikið að skrítnu Áströlsku liði þarna baksviðs. Við hjónin vorum kannski þau sem voru öðruvísi þarna. Hljóðmaðurinn var að venju mökkaður (eins og á Íslandi) og við urðum t.d. vitni að því hvernig dyraverðir útvega hljómsveitum grúppíur.

Erlend og Auðbjörg pössuðu jr. fyrir okkur um kvöldið. Jr. fékk sem sagt að stjórna þeim allt kvöldið. Enda er hann mikill herforingi og veit hvað hann vill. Í morgun kom t.d. í ljós hversu mikil herforingi hann er þegar hann sagði við mömmu sína að fara að læra þegar ég ætlaði að keyra hann í leikskólann og spurði hvort að Áslaug vildi koma með. "Nei - mamma læra".

Þessa daga eru leikskólakennararnir að fara með hann í stuttar heimsóknir yfir á nýja deild. Núna er hann að fara á deild með eldri krökkum og þá fer hann eflaust að tala meiri ensku og getur þá sagt: "No - mom study".

Síðan er smá fróðleiksmoli í lokin:
G´day = Halló
No worries = Auðvitað, ekkert mál.
Your shout! = Kauptu handa mér drykk!
BYO = Bring your own (wine).

2 Comments:

  • G´day mate,
    Ætlaði að ná þér niðri í síma um daginn - og viti menn - TT hættur, búinn farinn.
    Hringdi í gemsann og dein muter svaraði - fjandinn sjálfur laus?

    Allavega - var bent á síðuna ykkar. Snilldarhugmynd að flytja til Ástralíu til að leika sér. Alveg með betri hugmyndum sem ég hef heyrt lengi.

    Seggðu mér nú væni, snýst vatnið í öfugan hring í klósettinu þegar þú sturtar niður? (Hómer segir það ;-)

    Bestu kveðjur til allra Manna að störfum (og reyndar allra sem kunna textann við "Down under").

    Þorsteinn Yngvi

    By Anonymous Nafnlaus, at 8:28 f.h.  

  • Nick Cave er snillingur með meiru og mikið helvíti ertu nú heppinn að fá að spjalla við idolið! :D

    Ég mæti pottþétt aftur ef hann kemur til Íslands, án efa einir bestu tónleikar sem ég hef farið á.

    Kreditkortaáfyllingarnar komnar í loftið og svona, nýtt look á vefnum og beta.simaskra.is, helvíti magnað.

    Bið að heilsa hinumeginn á hnöttinn.

    Kv Snorri Páll

    By Anonymous Nafnlaus, at 9:05 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger