Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

laugardagur, júní 18, 2005 17. júní og Zoo

Það kom upp smá heimþrá í okkur í gær. Það er ekki oft sem við höfum verið erlendis á 17.júní. Til að halda upp á þjóðhátíðardaginn þá fórum við í göngutúr. Þar sem það er vetur hérna þá vorum við með ekta íslenskt sumarveður. 15 stiga hita og útlit fyrir rigningu.


Thor finnst mjög gaman að labba í pollum. Þessi mynd er tekin úr garðinum fyrir framan húsið okkar og miðbær Perth er í bakgrunni.

Við fórum á kaffihús og fengum okkur köku og heitt súkkulaði. Þetta er svona svipuð rútína eins og heima á 17.júní. Göngutúr og kaffihús. Það vantaði bara 50.000 manns á göngustíginn og sorgleg skemmtiatriði.

Áslaug er að lesa fyrir síðasta prófið sitt en það verður á miðvikudaginn. Eftir prófið er hún komin í vetrarfrí. Svo að Áslaug gæti fengið lestrarfrið þá skelltum við jr. okkur í Perth Zoo í morgun.

Þar sáum við ljón, tígrisdýr, blettatígur, apa, leðurblökur, fíla, kengúrur, nashyrninga .... og flest önnur dýr sem hægt er að skjóta. Þegar maður sér svona mörg dýr þá klæjar manni í gikk-puttann.


Það sést ekki nógu vel en Thor er að benda á einn fullorðinn nashyrning og einn unga.


Þegar þessi blettatígur kom uppað okkur þá sagði Thor: "Nei - hitt ljónið". Þessi var sem sagt ekki nógu spennandi og þá fórum við að skoða hitt ljónið. Þá var sagt: "váááá".

Það var furðulega gaman að fara í dýragarðinn og persónulega finnst mér aparnir vera skemmtilegastir.

Kjúlli á grillið í kvöld og honum verður skolað niður með einum köldum.

3 Comments:

  • Nú er miðvikudagur á norðurhveli vestan megin og ég geri þá fastlega ráð fyrir að miðvikudagurinn sé að kveldi kominn hjá ykkur sem þýðir að þú ert búin í prófinu þínu og komin í "sumar"frí! Til hamingju með það, hlakka til að heyra frá ykkur :D

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:52 e.h.  

  • Halló! er bara allt komið í sumarfrí, skrifin líka?? Látið nú endilega í ykkur heyra og setjið inn svolitlar sumarfrísmyndir!

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:48 e.h.  

  • Hvar er myndapakkinn af borginni sem þú ætlaðir að senda mér. Þarf að komast í Perth stuð kem eftir 10 daga !!!!!

    By Anonymous Nafnlaus, at 4:48 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger