Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

fimmtudagur, júní 02, 2005 G'day mate

Jæja þá er síðasti skóladagur þessarar annar búinn. Ég á bara eftir eitt próf og eina kynningu á verkefni og þá er ég búin með 1/3 af náminu. Veit ekki hvort mér finnst það eitthvað gleðiefni. Mér finnst nefnilega mjög gaman í skólanum og langar ekkert að hætta þessu strax. Svindl að vera fjögur ár í hjúkrunarfræðinni og fá svo bara 1 1/2 í sexology-unni. Er að hugsa um að bæta við mig hérna amk einni önn svo ég fái líka postgraduate diploma í sexology, það er þá allir kúrsarnir í masters programminu fyrir kynlífsfræðina en ekki önnur masters ritgerð.
Er núna að reyna að ákveða hvert ritgerðarefnið mitt á að vera fyrir masters ritgerðina. Það er of margt sem fólki þettur í hug að gera sem er ólöglegt varðandi kynlífshegðan, og mér finnst mjög erfitt að velja eitthvað eitt. Of margir perrar, bara ein ritgerð.
Annars á léttari nótunum. Thor er komin á nýja deild á leikskólanum (búin að eldast um eina deild) og þvílík breyting. Hann er miklu hrifnari af eldri börnunum og er farin að tala fullt af áströlsku á einni viku. Þegar við sóttum hann í dag talaði hann ekki um bíla eins og vanalega heldur "ka" sem er náttúrulega car. Angela leikskólakennari sagði okkur svo sögu um það þegar hún sagði við Thor að hún ætlaði að sækja kisa (hvítur köttur sem hann fékk í Singapore og hefur fylgt honum æ síðan og er kallaður "kísha" á leikskólanum). Þá sagði okkar bara nei pussy-cat.
Það sem okkur finnst samt en merkilegra er að einn strákur sem er oft með Thor á leikskólanum var að herma eftir okkur tala íslensku einn daginn. Þannig Thor lærir þeirra mál og þau hans.
Þangað til næst,
Áslaug

3 Comments:

  • Sælinu litla fjölskylda.
    Það er gott að ykkur gengur vel að leika við andfætlingana, passið ykkur bara á sólinni!
    kveðja
    Sigga Z

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:29 f.h.  

  • Við erum að koma!!!
    Búin að kaupa flugmiða lendi 13 júlí klukkan 14:35. Sendið mér Óskir um hvað þið viljið fá frá Íslandi. Er að hugsa um hvernig ég geti pakkað inn pylsunum af Bæjarins bestu, held að Vita Wrap sé ekki málið :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:36 f.h.  

  • Hey hvað er að heimasíðunni þinni Áslaug? Hún er alltaf eitthvað lasin, kemur bara upp Apple heimasíða sem segir að þín sé ekki ínáanleg :(

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:11 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger