Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

laugardagur, júlí 09, 2005 Hotel South Perth og syklalyf.

Þá er gestaherbergið tilbúið í bili í það minnsta. Það eru auðvitað komnar myndir inná síðuna mína af þessu öllu. Þetta er eins og á besta hóteli get ég sagt ykkur. Það er útgengt á svalir með útsýni yfir borgina (besta útsýni í bænum að margra mati), internet aðgangur, queen size rúm með Laura Ashley rúmfötum (kannski pínu stelpó), einka WC og svo náttúrulega eðal húsfélagar. Það þarf bara að koma sér hingað niður eftir sem tekur nokkra tíma í flugvél. Síminn er opinn fyrir pöntunum. Hljómar þetta ekki svolítið eins og hótel bæklingur?
Við fengum okkar fyrstu næturgesti í gær. Systkinin Ásgeir og Katrín komu og gistu hjá okkur. Nú höfum við fengið innsýn inní þann heim að eiga þrjú börn, sjáum svo til hvort að sonur okkar verði ekki bara einkabarn okkar hjóna. Nei annars þetta gekk eins og í sögu og allir höguðu sér vel. Enda var bara dælt frostpinnum í liðið og horft á ógrynni af Simpson.
Thor hefur verið með kvef og er nú komin með eyrnabólgu. Hann er farin að taka sýklalyf og er þá eins gott að eiga mömmu sem er öllum hnútum kunn í þeim efnum. Ég er búin að læra inná læknakerfið hérna og finna einn ágætis mann sem við gætum haft sem heimilislækni á meðan við búum hérna. Það er líka myndasíða af veikum syni okkar og næturgestunum.
Jæja er eitthvað andlaus að segja fréttir, vildi bara koma gestaherberginu á netið svo Katrín og Grétar viti hvað þau eru að koma í eftir 4 daga.
Áslaug

1 Comments:

  • Nú er kominn miðvikudagur hér og ef tíminn svíkur ekki þá er hann að kveldi kominn hjá ykkur sem þýðir að Katrín er komin. Velkomin til Perth Katrín og Grétar, og til hamingju með að vera búin að fá systur þína út Áslaug :D

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:35 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger