Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

miðvikudagur, júlí 06, 2005 Kaldasti dagur vetrarins og islensk kjötsupa

Í dag var kaldasti dagur vetrarins hér í Perth í ár, hingað til alla veganna. Ég ákváð því að hlýja okkur fjölskyldunni með því að elda íslenska kjötsúpu. Hún heppnaðist bara nokkuð vel. Ég þakka Maríu mömmu Auðbjargar fyrir að færa mér súpujurtir, annars hefði ekki verið kjötsúpa á borðum hérna.
Gestaherbergið er að verða til og ætla ég að setja inn myndir af því fljótlega. Við hjónin settum saman rúmgrindina sem kom frá IKEA í dag en við vorum búin að kaupa dýnu í Bed Shed (gott nafn á búð eða þannig), auðvitað á tilboði. Svo er bara að bíða viku í viðbót og þá sofa Katrín og Grétar í gestarúminu.
Ég er alltaf að verða meiri og meiri tölvusnillingur. Ég bjó til myndband í dag úr nokkrum stuttum upptökum sem við tókum í ferðinni okkar síðustu helgi. Þið getið séð afraksturinn á heimasíðu minni. Ég er viss um að apple fer fljótlega að hafa samband við mig og biðja mig að tölvunördast fyrir þá :)
Læt þetta duga í bili,
Áslaug

2 Comments:

  • ÍÍÍhhhaaa ekkert smá gaman að sjá ykkur á videoinu, halda þessu áfram. Næst bara miklu meira fólk (þið) og minna "fiskar" :D

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:41 e.h.  

  • Já þetta myndband er snilld. Uppáhalds kaflinn minn er þegar BabyThor er að slást við koddann sinn...a classic moment in TV history

    By Anonymous Nafnlaus, at 4:36 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger