mánudagur, júlí 04, 2005
Proflok og vetrarfri!
Þá eru próf og verkefnaskil yfirstaðin hjá mér. Mér hefur gengið vel í skólanum og er að standast eigin kröfur um skólagengi. 1/3 búin af mastersnámi mínu. Það er bara nokkuð gott. Ég hef verið dugleg að halda uppá það að vera búin með þennan áfanga. Strax eftir síðasta próf hélt partur af bekknum á krá og þar var skálað fyrir ágæti okkar sjálfra. Tveimur dögum síðar bauð Keith bekkjarbróðir minn frá New Jersey okkur heim. Bróðir hans og vinur eru í heimsókn hérna hjá honum og bróðir hans eldaði ofan í mannskapinn Philly cheese steak (svipað og Hlölli en vantaði Hlöllasósuna). Það var mjög góður matur og skemmtilegt partý. Við gátum ekki orðið okkur út um barnapíu fyrir það kvöld svo Thor kom bara með í partý. Hann er greinilega mjög partý glaður maður. Veit ekki hvort ég hlakka til unglingsáranna hans. Kvöldið eftir laugardaginn 25. júní buðum við vinum okkar Auðbjörgu og Erlendi ásamt Fjólu og móður Auðbjargar og móðursystur í grill. Það var auðvitað boðið uppá naut og rækjur - en ekki hvað. Það var mjög skemmtilegt kvöld sem stóð til að verða tvö um nóttu. Þetta var kveðju matarboð fyrir Auðbjörgu og Erlend því þau eru flutt heim. En þetta var líka velkomin til Ástralíu matur fyrir Maríu og Vigdísi (móðir og móðursystir). Það var mest lítið gert í byrjun síðustu viku en við hjónin fórum niður til Fremantle á miðvikudag að hitta nokkrar bekkjarsystur mínar og fórum í bíó. Sáum Batman begins og fengum heimþrá við að sjá föðurlandið í myndinni. Fjóla kom og passaði prinsinn. Það gekk ótrúlega vel, hún kom honum í rúmið á réttum tíma og allt gekk eins og í sögu. Hún kann greinilega tökin á þessu. Svo kom ferðahelgin mikla. Það má sjá myndir og fréttabréf um ferðina á heimasíðu Áslaugar. Við sem sagt keyrðum um 2 þús. kílómetra og sáum margt fallegt og höfðum það bara mjög gott. Feðgarnir fengu að gefa höfrungi fisk einn morgun og svo pelikana næsta morgun. Það sem sonur okkar er ekki búin að upplifa á stuttri ævi er fátt. Thor fann nokkra báta sem hann segist eiga og við foreldrarnir skiljum ekkert í því afhverju barnið bíður okkur aldrei í siglingu. Thor segir mjög oft þessa dagana "kaupa bát", hann verður örugglega siglingamaður mikill. Það var ósköp gott að koma heim til Perth í sitt rúm eftir langa ferð. Næst á dagskrá er að gera allt til áður en Katrín og Grétar mæta á svæðið. Það er sko mikil tilhlökkun hérna megin. Svo þarf ég nú líka að læra smá fyrir lokaverkefnið mitt. Er nokkrun vegin komin með efni sem ég vil rannsaka þannig að nú er best að gera heimildaleit. Hafið það sem best, þið sem nenntuð að lesa þetta allt. Áslaug

|
3 Comments:
Vá ekkert smá gaman að sjá allar þessar myndir, væri alveg til í brotabrot af veðrinu ykkar. Hér var aftakaveður um helgina. Allir sem voru í tjöldum komu kaldir og blautir heim tí hí. Svona er það að fara í tjald, sannast bara aftur og aftur að það er ekki góð hugmynd!
Fékk Thor litli ekki örugglega pakkann sinn?
By
Nafnlaus, at 10:48 e.h.
Kveðja frá Leirutanganum. Katrín er að koma en þau hin koma um jólin. Flottar myndir, greinilegt að þið eruð búin að liggja í sólinni orðin kaffibrún bara ;)
Munið að nota sólarvörn
By
Nafnlaus, at 3:42 f.h.
Vá þetta er ekkert smá ævintýri hjá ykkur :) Gaman að fylgjast með þér og þínum Áslaug. Frétti meira af þér í Ástralíu en á Íslandi :) en það er bara fínt ;)
bestu kveðjur
Marín
By
Nafnlaus, at 12:10 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home