Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

laugardagur, júlí 23, 2005 Snake and more snake !

Dagur vinur okkar, benti okkur réttilega á að það eru ekki með venjulegar árstíðir í Ástralíu. Það er ekki vetur, vor, sumar og haust heldur snake og more snake. Það er sumar á Íslandi núna en snake hjá okkur og við erum að sigla inn í more snake. Það er búið að vera svolítið kalt þennan snake og okkur hlakkar mjög til að geta farið á ströndina þegar það kemur more snake.

Ég verð líka að segja ykkur frá því að það var verið að setja upp nýtt skilti í götuna okkar. Þar sem það hefur verið nokkuð af villidýrum í götunni undanfarið þá verður víst að vara fólk við.

















Hérna fyrir neðan er mynd úr bakgarðinum okkar en við þurfum að leggja bílnum á bakvið tréin og labba smá til að komast inn í hús. Það er nokkuð mikið af slöngum þarna en við erum orðin vön því.



Þar sem að allir í Ástralíu eiga kengúru gæludýr þá ákváðum við að fá okkur eina. Fólk er líka sektað ef það á ekki kengúru þannig að þetta kemur betur út fjárhagslega.

Kengúran heitir Dagur og var skýrð í höfuðið á vini okkar. Annars var Áslaug að setja inn fleiri myndir á síðuna sína og þegar það kemur more snake þá fáið þið að fleiri myndir frá ströndunum hérna í kring.

2 Comments:

  • Thor minn ég held að þú sért að fara yfir um. Þetta er náttúrulega allt lygi. Hættu nú að drekka Little Creatures.
    Eiginkonan

    By Blogger Aslaug, at 11:58 f.h.  

  • hí hí ! Alltaf gaman að ýkja hlutina aðeins eða bara hreinlega búa þá til :-) Gaman að fylgjast með ykkur. Ég er alltaf að setja inn nýjar myndir hjá krökkunum !! Kveðja úr Mosó, María

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:32 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger