laugardagur, júlí 16, 2005
Ættingjar komnir
Nú eru Katrín og Grétar mætt til Perth. Þau komu um miðjan dag á miðvikudag. Mjög gaman að fá þau og einstaklega gott að fá til sín gesti. Þau eru náttúrulega bara tímabundnir gestir hjá okkur en langtíma gestir í Perth. Þau eru aðeins farin að kíkja eftir íbúð til að búa í en eru ekki alveg viss um hvar sé best að vera. Það eru bara svo mörg spennandi hverfi hérna. Síðan þau komu höfum við farið um Fremantle, skoðað skólanna þeirra, nokkur hverfi hérna í kring og miðbæinn. Strákarnir kíktu svo á næturlífið í gær en við systur vorum bara heima. Annars er allt bara í sómanum hérna og líklegast höldum við í lautarferð á morgun því spáð er góðu verðir hérna á morgun. Mín von er að veturinn sé að verða búinn og tími komin á okkar 9 mánaða sumar. Sjáum svo hvers ég óska þegar hitinn fer að nálgast 40 gráðurnar í sumar. áslaug

|
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home