Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

Blogg

fimmtudagur, ágúst 18, 2005 Royal puppetmaster

Ég uppgötvaði í morgun hvað Thor jr. er orðinn mikill brúðuleikstjóri. Við foreldrarnir erum brúðurnar og hann stjórnar mér með hægri og mömmu sinni með vinstri.
Í hvert einasta skipti sem við förum með hann á leikskólann þá setur hann um leikrit. Söguþráðurinn gengur út á að hann sé óánægður með að mæta á leikskólann. Hann labbar ánægður inn á leiksólann og þegar fóstran hans ætlar að taka hann þá reynir hann að fara að gráta og kallar á foreldra sína. Þegar við erum hinsvegar farinn út úr herberginu þá hættir hann og fer að leika. Hann vill aðeins sýna okkur að hann sé ekki ánægður með þetta og vill fá eitthvað í staðinn fyrir þjáningar sínar.

Ég held að hann sé samt mjög ánægður á leikskólanum. Fóstrurnar gera allt fyrir Thor þar sem hann talar litla ensku og hefur þurft að fá meiri hjálp við að aðlagast en önnur börn.
Þetta finnst jr. bara fínt þar sem hann fær meiri athygli heldur en hin börnin.
Í morgun mættum við á leikskólann og ein fóstran kallaði á Thor og sýndi honum Shrek litabók. Thor settist við borð og ég fór með honum. Síðan þegar ég ætlaði að kíkja á bókina þá sagði hann: “Nei pabbi far þú heim”. Ég fór beinustu leið heim orðinn ómerkilegri en litabók.
Hann hefur reyndar alltaf fengið mikla athygli og mikið dekur. Frá foreldrum sínum og afa og ömmu. Á leiksólanum á Íslandi þar sem að aðal fóstran er frænka hans. Extra mikið dekur við brotflutninginn til Ástralíu og núna daglega á leikskólanum í Perth.
Ætli hann sé ofdekraður? Ég bíð spenntur eftir að sjá hvernig hann verður þegar afi hans og amma koma í heimsókn í desember þá setur hann upp sýningu og fer að stjórna - ég vil nú meina að afi hans hafi komið honum á bragðið og er sjálfur blásaklaus og get komið með gögn til að sýna fram á það.

Annars er í fréttum að við cirque du soleil um helgina með vinum okkar Ella og Kollu og börnunum þeirra Ásgeiri og Katrínu. Þetta er vægast sagt flott sýning og maður var gjörsamlega orðlaus.

Ég bjóst ekki við því að finnast þetta svona rosalega skemmtilegt (ég er nú samt hálfgert sirkus-frík). Þetta var nú allt í dýrari kantinum enda flottur sirkus. Verðlagið var bara eins og á íslandi. Ég get ekki sagt að ég hafi fengið heimþrá þegar ég borgaði 500 kr. fyrir bjór í fyrsta skipti frá því við fórum frá klakanum.

Jr. klár fyrir sirkusinn.

Alsæll við stýrið fyrir utan.


Krakkarnir komnir í stellingar.

Fengum okkur síðan ís í hléinu.

Það er búið að rigna svolítið hérna í vetur og það kom meira að segja haglél í gær - það hefur víst ekki gerst í nokkur ár og einn sem ég hitti hafði aldrei séð haglél á ævinni. Það er að koma vor og við förum fljótlega í stuttbuxna fílinginn. Alveg hræðilegt að upplifa annan eins vetur - 18 stiga meðalhiti.

Hérna eru nokkrar myndir frá Perth:

Cottesloe ströndin

Perth frá garðinum fyrir framan húsið okkar

Perth frá Kings Park -

föstudagur, ágúst 05, 2005 Hong Kong ofl.

Við hjónin vorum að kaupa okkur flugmiða til Hong Kong og fljúgum þangað 10 sept. Það verður mjög gaman að skreppa þangað en það er einungis 7 klukkutíma flug (sem er ekkert miðað við London-Singapore). Katrín og Grétar ætla að passa Thor jr. á meðan við förum. Það er þvílíkur munur að búin að fá þau hingað út. Ég held t.d. að ég hafi farið jafn oft út á lífið síðustu 2 vikur eins og síðustu mánuði.

Það er einnig í fréttum að við erum komin í golfkennslu hjá einhverjum PGA golfara. Markmiðið með golfinu er að vinna Jónas þegar maður hittir hann næst. Veit ekki hvort að það verður erfitt að ná því markmiði en hann er sjálfur búinn að fara í golfkennslu. Perth er víst þekktur golf staður enda er allt morandi í golfvöllum hérna. Það eru 3 vellir rétt hjá okkur og maður verður víst að spila golf þegar aðstæðurnar eru svona góðar. Golf í Perth.

Ég var líka að byrja í utandeildarliði í fótbolta. Búinn að mæta á 4 æfingar og spila einn leik. Þetta er bara nokkuð gaman en það eru 15 ár síðan ég fór á síðustu fótboltaæfingu. Þetta eru alvöru æfingar og maður er dauðuppgefinn eftir þær. Maður kemst kannski í form. Það eru skemmtilegar týpur í liðinu. Það er t.d. einn ítali með þvílíkt sítt að aftan. Hann er kallaður "mullet power" af hinum í liðinu. Þjálfarinn er portúgalskur og segir "fuck" í öðru hverju orði - hann er með fullt af gullmolum eins og "just use your fucking brains if you have one" og "shoot with your dicks if you can´t use your legs".

Við keyptum okkur hjól um daginn. Núna er sumarið að koma og Thor er orðinn nógu stór til að sitja í barnastól á hjólinu. Maður er bara 10 mínútur að hjóla niður í SWAN brewery. Þar verður gott að fá sér einn kaldann í miðjum hjólreiðatúr.

Thor jr. er farinn að tala meira og meira í ensku og bannar manni að tala ensku við hann. Hann vill hafa enskuna í leikskólanum og íslenskuna heima. Hann bannar konunum í leikskólanum að nota íslensk orð - hann þýðir bara fyrir þær þegar þær reyna að nota íslensk orð.



Saknaði félaganna í Dallas þegar ég heyrði "More than a feeling" með Bolton í útvarpinu áðan. Reyndar er þetta spilað á hverjum degi hérna alveg eins og þetta er spilað í hverju Dallas partý. Ég hvet Dallas menn til að bóka flug til Ástralíu ég býð upp á nautasteik, bjór og rauðvín.

Thor

Powered by Blogger

Eldra blogg