|
fimmtudagur, ágúst 18, 2005 Royal puppetmasterÉg uppgötvaði í morgun hvað Thor jr. er orðinn mikill brúðuleikstjóri. Við foreldrarnir erum brúðurnar og hann stjórnar mér með hægri og mömmu sinni með vinstri.Í hvert einasta skipti sem við förum með hann á leikskólann þá setur hann um leikrit. Söguþráðurinn gengur út á að hann sé óánægður með að mæta á leikskólann. Hann labbar ánægður inn á leiksólann og þegar fóstran hans ætlar að taka hann þá reynir hann að fara að gráta og kallar á foreldra sína. Þegar við erum hinsvegar farinn út úr herberginu þá hættir hann og fer að leika. Hann vill aðeins sýna okkur að hann sé ekki ánægður með þetta og vill fá eitthvað í staðinn fyrir þjáningar sínar. Ég held að hann sé samt mjög ánægður á leikskólanum. Fóstrurnar gera allt fyrir Thor þar sem hann talar litla ensku og hefur þurft að fá meiri hjálp við að aðlagast en önnur börn. Þetta finnst jr. bara fínt þar sem hann fær meiri athygli heldur en hin börnin. Í morgun mættum við á leikskólann og ein fóstran kallaði á Thor og sýndi honum Shrek litabók. Thor settist við borð og ég fór með honum. Síðan þegar ég ætlaði að kíkja á bókina þá sagði hann: “Nei pabbi far þú heim”. Ég fór beinustu leið heim orðinn ómerkilegri en litabók. Hann hefur reyndar alltaf fengið mikla athygli og mikið dekur. Frá foreldrum sínum og afa og ömmu. Á leiksólanum á Íslandi þar sem að aðal fóstran er frænka hans. Extra mikið dekur við brotflutninginn til Ástralíu og núna daglega á leikskólanum í Perth. Ætli hann sé ofdekraður? Ég bíð spenntur eftir að sjá hvernig hann verður þegar afi hans og amma koma í heimsókn í desember þá setur hann upp sýningu og fer að stjórna - ég vil nú meina að afi hans hafi komið honum á bragðið og er sjálfur blásaklaus og get komið með gögn til að sýna fram á það. Annars er í fréttum að við cirque du soleil um helgina með vinum okkar Ella og Kollu og börnunum þeirra Ásgeiri og Katrínu. Þetta er vægast sagt flott sýning og maður var gjörsamlega orðlaus.Ég bjóst ekki við því að finnast þetta svona rosalega skemmtilegt (ég er nú samt hálfgert sirkus-frík). Þetta var nú allt í dýrari kantinum enda flottur sirkus. Verðlagið var bara eins og á íslandi. Ég get ekki sagt að ég hafi fengið heimþrá þegar ég borgaði 500 kr. fyrir bjór í fyrsta skipti frá því við fórum frá klakanum. ![]() Jr. klár fyrir sirkusinn. ![]() Alsæll við stýrið fyrir utan. ![]() Krakkarnir komnir í stellingar. ![]() Fengum okkur síðan ís í hléinu. Það er búið að rigna svolítið hérna í vetur og það kom meira að segja haglél í gær - það hefur víst ekki gerst í nokkur ár og einn sem ég hitti hafði aldrei séð haglél á ævinni. Það er að koma vor og við förum fljótlega í stuttbuxna fílinginn. Alveg hræðilegt að upplifa annan eins vetur - 18 stiga meðalhiti. Hérna eru nokkrar myndir frá Perth: ![]() Cottesloe ströndin ![]() Perth frá garðinum fyrir framan húsið okkar ![]() Perth frá Kings Park - |
3 Comments:
Það er æði að fá að fylgjast svona með ykkur og öfunda ykkur að upplifa þetta allt saman :-)
Kveðja úr Mosó, María
By
Nafnlaus, at 5:53 f.h.
Voðalega er maður orðinn herralegur í þessum jakka. Hann gæti rölt um sveitir Englands með glæsibrag tí hí.
Gaman að heyra fréttir og enn skemmtilegra að skoða myndir :D
By
Nafnlaus, at 6:02 e.h.
Hæ fjölskylda! Datt óvart inn á síðuna ykkar. Falleg síða. Gaman að sjá hvað þið hafið komið ykkur vel fyrir. Kveðja frá Easton, USA
By
Nafnlaus, at 11:22 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home