þriðjudagur, september 27, 2005
Australian Rules Football
Jæja - þá er maður orðinn háður Áströlskum fótbolta. Á laugardaginn var liðið mitt West Coast Eagles að keppa úrslitaleikinn í AFL á móti Sydney Swans. Leikurinn var í Melbourne sem er heimili ástralska fótboltans og völlurinn þar tekur 100.000 manns. Þetta er frekar magnað sport. Reglurnar eru þannig að liðin verða að koma botanum á milli stanga andstæðingsins. Það má sparka og slá boltanum til samherja en ekki henda, það má reyna að myrða þann sem er með boltann eða þann sem er að fara að fá boltann. Það má ekki hlaupa með boltann nema nokkra metra án þess að drippla. Það er varla hægt að drippla boltanum og mjög erfitt að sparka honum. Þannig að þessu leikur er algjör geðveiki.
Elli sjúkraþjálfari ÍBV er hérna í Perth að taka master í sjúkraþjálfun sagði mér að Ástralir væru fremstir í heiminum í sjúkraþjálfun þökk sé þessari íþrótt. Það er búið að vera reglulega í fréttunum hérna að einhver leikmaður á yfir höfði sér kæru vegna líkamsárásar inná vellinum.

Ég skellti mér að pöbb til að horfa á leikinn með 800 öðrum æstum stuðningsmönnum West Coast. Leikurinn er um 3 klukkutíma og skiptist í 4 hluta þannig að það náðu allir að fá sér 1 eða 2 kalda með leiknum. West Coast Eagles voru 20 stigum undir í 3ja leikhluta ein náðu að vinna upp muninn og komast 10 stigum yfir á stuttum kafla. Það leit allt út fyrir sigur þegar Sydney náði að komast yfir rétt undir lokin. Ég var nú bara mjög ósáttur við þessi úrslit og fór heim.
Núna eru vetrarsportin komin í sumarfrí og krikkettið er að fara að byrja. Síðasti leikurinn minn með Calcio Rebels var á sunnudaginn og deildin byrjar aftur í apríl. Núna þarf ég að finna mér sumarsport og valið stendur á milli golfs/sund í sjónum(hákarlafæða)/tennis/krikket. Ég ætla að sjá hvort að þeir eru með utandeild í krikkett hérna. Það sport snýst um að standa í sólinni í hvítum galla með gin og tonic í hendi - það getur varla klikkað.

|
1 Comments:
Þið hafið verið klukkuð
Þið þurfið að skrifa 5 staðreyndir um ykkur sem enginn veit.
By
Nafnlaus, at 1:30 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home