Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

sunnudagur, september 04, 2005 Enn a lifi

Það er orðið ansi langt síðan ég setti eitthvað hérna inn. Skólinn er sem sagt aftur byrjaður.
Það er fullt spennandi framundan í náminu mínu eins og alltaf. Enda ekki við öðru að búast þegar maður er að læra um kynlíf alla daga. Ég er búin að vera í vikufríi frá skólanum sem endar í dag. Ég hef aðallega eytt þeim tíma í lærdóm og veikindi. Enda best að klára svoleiðis fyrir Hong Kong för okkar hjóna.
Síðustu helgi tókum við litli Thor þátt í City to Surf maraþoni hérna í Perth. Katrín fór með okkur og gengum við systur 4 kílómetra. Eins og sönnum íslendingum sæmir mættum við með fánann okkar og blöðru með íslenska fánanum á. Mesta furða að enginn áttaði sig á því hvaðan fáninn kom, og enginn einu sinni spurði! Við fengum svo medalíur og allt við rásmarkið. Það voru um 26,000 manns sem tóku þátt í þessu hlaupi. Það var mjög skemmtilegt að taka þátt og sjá allan þenna fólksfjölda saman komin. Ef við systur verður hér að ári ætlum við að skella okkur aftur og þá í 12 kílómetrana.
Eftir hlaupið fórum við svo til Mandura sem er bær í um 80 kílómetra fjarlægð suður af Perth. Þar voru Thor og Grétar að keppa í fótbolta. Þetta er mjög flottur bær, eitt hverfi þarna er allt vogskorið og þar eru einbýlishús í röðum, hvert með sína bryggju og bát við lóðarmörkin. Ekki slæmur staður til að taka því rólega í ellinni, dorga við húsið og skella sér svo í siglinu.
Ég set inn einhverjar myndir á myndasíðuna mína.
Njótið haustrómantíkurinnar á Íslandi,
Áslaug

2 Comments:

  • Jibbííí nýtt blog :D
    Takk fyrir símtalið á laugardagaginn, ég held að ég hafi ekki talað í símann í einn og hálfan klukkutíma síðan ég var á toppi gelgjunnar!! Mjög gott að fá smá smjörþef af því aftur haha.

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:12 e.h.  

  • Velkomin "heim" aftur frá Hong Kong. Hlakka til að heyra alla ferðasöguna og sjá fullt af myndum ;o)

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:23 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger