fimmtudagur, september 22, 2005
Hong Kong með minum augum
Eins og Thor sagði frá erum við komin heim frá Hong Kong. Ég eyddi mínum tíma í að skoða eyjurnar sem mynda HK, markaði og fólkið. Ég fór og skoðaði Stanley market sem er á Hong Kong eyju. Mjög fallegt að keyra þangað, fallegar strendur og aðeins minna af steinsteypu en inní í miðborginni. Markaðurinn er samt ofmetin að mínu mati. Ekki margt merkilegt að sjá sem maður sér ekki á öllum öðrum mörkuðum. Hitti mann frá Kanada í strætó á leiðinni til baka og hann var sammála mér - við skildum ekki af hverju þessi markaður var eitthvað ´must see´. Við hjónin fórum svo um Causeway bay sem er spennandi hverfi að versla í, nóg af fólki og neon skiltum. Við gengum svo um Wan Chai sem á að vera rauðahverfi HK en sáum engar gleðikonur eða neitt annað sem benti til þess að þetta hverfi væri rauðara en önnur hverfi. Kannski vorum við ekki í réttum götum en alla veganna misstum við af þessu. Ég tók Thor með mér sem lífvörð á Ladies market, þar eru seldar merkjatöskur í íbúðum aftan við markaðinn. Þetta er víst ólöglegur varningur þannig að maður fær að sjá myndir á markaðinum og fer svo inní blokkir á bakvið sölubásana og skoðar í læstum íbúðum það sem til er. Ég keypti mér tvær Gucci töskur eftir að hafa skoðað á milli 5-10 íbúðir fullar af töskum. Furðulegt en mjög gaman að prófa þetta. Allar ferðahandbækur segja að maður hafi ekki séð HK án þess að heimsækja næturlífið. Við hjónin fórum því eitt kvöld á aðal djammgötuna - Lan Kwai Fong. Það var eins og að fara inní jólagötu. Það voru seríur hengdar yfir göturnar og allt vel upplýst. Svo voru þarna allar tegundir af börum og skemmtistöðum. Við skoðuðum bara lítin hluta því fætur mínir voru lúnir eftir göngur dagsins. Við gengum svo Avenue of Stars í Kowloon og horfðum á ljósasinfoníu. Byggingarnar á Hong Kong eyju eru lýstar upp á hverju kvöldi kl 20 og mikið ljósashow eða ljósasinfonia eins og þeir kalla það sýnd. Á þessu avenue stjarnanna var Jackie Chan aðal hetjan og mannhæða myndir af honum, enda aðal stjarna HK. Við hjónin gerðum okkur líka ferð uppí the Peak sem er útsýnissvæði á HK eyju. Þar sá maður yfir allt svæðið, það var smá mistur yfir borginni þegar við fórum þangað en reynslan var samt mögnuð. Við sigldum svo til Lamma eyju og skoðuðum smá hluta af henni líka. Það var eins og að koma í annan heim, ekki meira en 3ja hæða hús og eins og að ferðast aftur í tímann. Við sáum margt í þessari ferð en samt er enn margt eftir að sjá í HK. Þetta er lítið landsvæði algjörlega troðið af einhverju til að sjá. Næst verður svo farið á alla barnastaðina s.s disney land og Ocean park, enda ætlunin að hafa þann stutta með þá. Jæja best að snúa athygli minni að eiginmanninum þar sem við eigum fjögurra ára brúðkaupsafmæli í dag. Gott hjá okkur.

|
6 Comments:
Til hamingju með árin 4. Ótrúlegt hvað tíminn líður.
Aldís
By
Nafnlaus, at 11:41 e.h.
Til hamingju með giftingardaginn ykkar. Kveðja Andres og Sue USA
By
Nafnlaus, at 3:35 f.h.
Til hamingju með brúðkaupsafmælið, er ekki alveg að trúa því að það séu fjögur ár síðan ég dansaði trilltan dans í brúðkaupinu ykkar EN svo er víst.
Fáum við síðan ekki myndir inn á síðuna þína Áslaug? T.d. af Gucci töskunum frægu ;o)
By
Nafnlaus, at 6:32 e.h.
Innilegar hamingjuóskir úr Skildinganesinu. Við héldum reyndar að þið ættuð Gull brúðakaupsafmæli, en svona líður tíminn víst hægt...
Kv,
Skeeerjóóó
By
Nafnlaus, at 3:42 f.h.
til hamingju árin 4,
kv,
Snorri og Magnea.
By
Nafnlaus, at 3:52 f.h.
Já ætli ég segji ekki bara aftur TIl hamingju með 4 árin
katrín sys
By
Nafnlaus, at 1:59 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home