miðvikudagur, september 21, 2005
Kom Kom
Við hjónin fórum til Hong Kong í síðustu viku og vorum í 7 daga. Ég tók þátt í ráðstefnu á vegum vinnunnar og Áslaug ákvað að gera úttekt á verslunarmenninguna Hong Kong búa. Katrín og Grétar pössuðu Thor jr. fyrir okkur á meðan. Jr. var bara sáttur við þetta og talaði um að mamma og pabbi væru í Kom Kom. Í flugvélinni fékk ég einhvern skrítna veiki. Ég var búinn að vera kvefaður áður en ég fór og þrýstingurinn í flugvélinni náði einhvernvegin að koma einhverjum óþvera í eyrað á mér. Þannig að þegar við komum á hótelið klukkan 21:00 á laugardegi byrjaði allt að snúast og ég tók uppá því að kasta upp. Næstu 16 tímar voru ekkert sérlega skemmtilegir (ég sleppi að lýsa þeim). Áslaug dró mig til læknis sem gaf mér 3 tegundir af pillum. Eina græna og tvær hvítar. Eftir smá pilluát fór mér að líða betur og við vorum komin í matarboð klukkan 18 á laugardeginum. Ég er hálf heyrnarlaus á vinstra eyra eftir þetta en þetta á víst að lagast næstu daga. Fyrir utan fyrstu 2 dagana var ferðin mjög skemmtileg. Ráðstefnan gekk vel og ég kynntist fullt af fólki í þessum "gambling" bransa sem ég er byrjaður að vinna í.
 Við náðum að skoða mjög margt í Hong Kong. Hong Kong er ein lítil eyja. Samt er nafnið Hong Kong notað fyrir margar eyjur og smá part af meginlandi Kína. Jackie Chan er þvílíkt icon í Hong Kong og maður rekst á myndir af honum útum allt.
 Við fórum t.d. á veðreiðar á dýrustu veðhlaupabraut í heimi inn í miðri Hong Kong. Við unnum aldrei þótt að við veðjuðum á hesta eins og Barracuda!!!
 Það er víst búið að taka mjög mikið til í Hong Kong eftir SARS og borgin miklu hreinni en áður. Það var samt skrítin lykt út um allt og sum húsin viðbjóður.
 Það var mjög gaman að geta farið svona oft út saman á kvöldin og þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að vakna snemma með jr. morguninn eftir.
Við söknuðum jr. mjög mikið og áttum mjög erfitt með okkur stundum. Við bjuggumst við því að hann yrði glaður að sjá okkur. Þegar við hittum hann á flugvellinum eftir allan þennan tíma sagði hann við okkur: "Hvar er dótið?". Keyptum eitthvað Disney/Pixar dót handa honum og hann sleppti hádegislúrnum útaf því að hann var of upptekinn við að leika við Vido og Bussa Læt.
Það er gott að koma aftur heim til Perth. Langt þangað til maður fær sér kínverskan mat aftur- nú er vorlambið komið til slátrarans!!!

|
3 Comments:
Huggulegt af þeim að steralísa bílinn fyrir ykkur. Jr. saknaði ykkar mikið, og var ekki bara sjúkur í dótið, ég lofa.
Katrín Leigumóðir
By
Nafnlaus, at 4:04 e.h.
Vona að heyrnin sé öll að koma til þótt þú notir hana eflaust sem afsökun fyrir að heyra ekki í Áslaugu ef hún byrjar eitthvað að nöldra haha.
By
Nafnlaus, at 5:47 e.h.
Góð mind af ykkur hjónunum þarna í Kom Kom eins og sumir seija.
Kveðja
Andrés T
By
Nafnlaus, at 12:29 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home