Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

laugardagur, október 22, 2005 Löggan og gleðikonan!

Síðasta fimmtudag áttum við að fá tvo gestafyrirlesara í tíma sem hvorugur komst svo. Fyrri fyrirlesarinn átti að vera lögga sem vinnur við kynferðisglæpi í Perth. Hann mætti ekki því nú stendur yfir rannsókn á andláti eins versta kynferðisglæpamanns vestur Ástralíu. Hann hengdi sig í hágæslu fangelsinu Casuarina, en fangelsisyfirvöld hafa ekki viljað gefa út með hverju hann hengdi sig. Ég giska á belti fangavarðar - sjáum svo til hvað kemur út úr þessari rannsókn.
Næsti fyrirlesari átti að vera madam í einu brotheli (hóruhúsi) hérna í Perth borg. Hún mætti ekki líklega vegna anna! Við hittum hana nú samt í næstu viku ef allt gengur samkvæmt áætlun. Sem það hefur einmitt ekki verið að gera undanfarið.
Til þess að redda málunum ákvað kennarinn að við færum bara í skoðunarferð í Casuarina þennan dag til að bæta okkur tapið. Morgunin fyrir tímann fékk kennarinn þær fréttir að þeir væru með "lock down" vegna óeirða í fangelsinu. Við munum því gera okkur ferð þangað í næstu viku líka og mætum snemma morguns. Vonum svo bara að það verði ekki aftur "lock down" þar meðan við erum stödd í fangelsinu. Því þá verðum við lokuð inni líkt og fangarnir. Þetta er náttúrulega hágæslu fangelsi þekktustu fanganýlendu heims.

1 Comments:

  • Þetta nám þitt er náttúrulega bara algjöör Snilld!!!

    By Blogger FJOLA, at 11:36 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger