föstudagur, október 07, 2005
Tilviljun...ég held ekki!
Ég hef verið að velta hlutunum fyrir mér undanfarið. Afhverju gerir maður suma hluti. Hérna er ástæðan fyrir því að ég endaði í Ástralíu. Ég heiti Áslaug og Ástralía byrjar á sama staf og nafnið mitt. Ég á afmæli 26. janúar og þjóðhátíðardagur Ástralíu er 26. janúar. Ég segi ekki meira... Svona til að þið gerið ykkur grein fyrir þessum örlögum mínum, þá vann ég á Barnaspítala Hringsins og afmæli Hringsins er 26. janúar, sama dag var Barnaspítalinn opnaður. Haldið þið nokkuð að ég sé að nálgast hættumörk þess að vera búin að læra yfir mig? Áslaug

|
5 Comments:
Ég held þessi fullkomnunar árátta se að rugla í hausnum á þér. Ég skal koma og heimsækja þig niður í kjallara í Þjóðarbókhlöðunni þegar við komum heim til Íslands.
By
Nafnlaus, at 9:41 f.h.
Kúkú
By
Nafnlaus, at 10:02 e.h.
Magnaðar staðreyndir!!!
Það þýðir ekkert annað heldur en að halda eitt stórt barbí niðrá strönd á ammlinu þínu!!
Hei...hvað er annars að frétta af íslendingafélaginu??
By
FJOLA, at 1:45 e.h.
Oh dear god, it's happened!
By
Nafnlaus, at 6:02 f.h.
Hæ - bestu kveðjur af klakanum. Takk fyrir góð kynni fyrr á árinu, ævintýri sem gleymist aldrei. Frábært hvað gengur vel hjá ykkur.
Vigdís
By
Nafnlaus, at 4:50 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home