sunnudagur, nóvember 20, 2005
30 stiga hiti á hverjum degi
Núna er Áslaug búin í prófunum og komin í frí. Það hefur verið mikið að gera hjá okkur báðum undanfarið en við ætlum að taka okkur á og reyna að blogga meira núna. Hérna er smá yfirlit hvað er búið að gerast hjá okkur.
Tölvan mín krassaði um daginn og móðurborðið eyðilagðist. Fór með hana í viðgerð og maðurinn sem tók við tölvunni sagði að gögnin væru eflaust ónýt. Ég var að sjálfsögðu aldrei búinn að taka afrit af gögnunum og fékk sjokk - vissi ekki alveg hvort að ég ætti að gráta eða æla. Ég fékk vélina sem betur fer í heilu lagi nokkrum dögum seinna eftir mjög leiðinlega bið.
Ætla að taka afrit reglulega núna!!
Ég og Thor jr. fórum á Camping expo til að skoða báta og jeppa. Jr. fékk að klifra upp í alla bátana á sýningunni og skemmti sér konunglega. Ég sá skemmtilegar útileigu græjur og nokkra jeppa sem ég get kannski keypt notaða eftir 10 ár :).

Við erum búin að skella okkur nokkrum sinnum á ströndina og verðum reglulegir gestir í sumar eins og áður hefur komið fram.
 Fórum á cottesloe á sunnudegi og sáum hvernig Ástralir taka á því í Sunday Session. Sunday Session er bara djamm um miðjan dag og langar raðir eru fyrir utan skemmtistaði.

Við erum líka búin að vera að skoða nágrenni Perth. Fórum að skoða stíflu sem þeim þykir mjög merkileg.

Það er komið "bush fire season" og fólk á að hafa varan á. Sólin og hitinn geta víst kveikt í gróðrinum hérna við einhver ákveðin skilyrði. Í fyrra var víst það mikill eldur í óbyggðunum hérna að reyk lagði yfir alla borgina og það sást ekki í háhýsin.
Fórum í nokkur partý og nokkur afmæli. Leikskólakennari frá leikskólanum hans Thors kom og passaði fyrir okkur.
Fórum á gay pride hérna sem var um haldin á laugardagskvöldi. Þeir koma víst bara út á kvöldin hérna. Er ekki alveg að skilja þetta með dönsku nunnurnar í göngunni - en Thor jr. fannst þetta allt mjög merkilegt og mótorhjóla lesbíurnar voru flottar.
 Við héldum partý í gær fyrir bekkjarfélaga Áslaugar og kennara. Það er mikil þynnka í gangi hjá mér en Áslaug slapp. Thor jr. fékk að gista hjá Grétari og Katrínu og sagðist vera fluttur til þeirra hann hafði það svo gott hjá þeim. Við setjum inn myndir frá partýinu á morgun eða hinn.
Síðan koma tengdó í byrjun næsta mánaðar og við ætlum að leigja húsbíl og skoða okkur um. Keyra niður til Margaret river sem er eitt frægasta vínhérað í Ástralíu. Ekki alveg það sem maður er að hugsa núna en ég vona að þynnkan verði horfin þá....

|
1 Comments:
Til hamingjun Áslaug mín með að vera búin í prófunum, það er ekki lítið sem ég öfunda þig að 3ja mánaða sumarfríinu þínu!!! Hér er klikkunin að taka við og kuldinn í þokkabót. Njóttu veðursins og skálaðu reglulega fyrir okkur jólaálfunum á Fróni :D
By
Nafnlaus, at 5:19 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home