þriðjudagur, nóvember 01, 2005
Jása
Emilíana Torrini er á leiðinni til Ástralíu og ætlar að halda tónleika í nokkrum borgum. Diskurinn hennar "Fishermans Wife" er einn af söluhæstu diskunum í Ástralíu á þessu ári. Hún kemur til Perth í desember og ætlum við hjónin að skella okkur á tónleikana. Birkir vinur okkar hafði samband við okkur og sagðist hafa reddað okkur á gestalista. Hann þekkir trommarann hjá Emilíönu sem ætlar að græja þetta. Ekki slæmt!! Ég hef nú aldrei hlustað neitt á hana Emilíönu en fékk mér nýja diskinn eftir að ég heyrði hann í útvarpinu hérna.. þetta verða eflaust fínir tónleikar. Takk fyrir þetta Birkir...
Ég er alltaf að reyna að kveikja áhuga á fótbolta hjá jr. og það gengur víst bara ágætlega. Við fórum á leik um daginn að sjá Perth Glory spila. Óli vinur okkar hérna var með miða og bauð okkur, Grétari og jr. með sér.
 Thor lifði sig vel inní þetta og klappaði t.d. mikið þegar Perth skoraði.
 Við fórum nokkrum mínútum áður en leikurinn var búinn til að losna við mestu umferðina. Thor kvartaði mjög mikið yfir því og vildi sjá meiri fótbolta. Þannig að planið mitt lögfræðingur/knattspyrnumaður er ennþá í fullu gangi.
Núna eru 5 vikur í að tengdó koma í heimsókn. Það er ekki slæmt að vera með svona barnapíur sem fljúga hálfan hnöttinn til að passa... ég efast um að þau vilji eitthvað hitta mig og Áslaugu :) Áslaug klárar þessa önn eftir 3 vikur og verður þá komin í 3ja mánaða sumarfrí.
Mér tókst að drepa alla heimþrá með því að lesa á mbl.is hvernig veðrið er á Íslandi.

|
7 Comments:
Besta ráðið til þess að fá ekki heimþrá er bara að horfa á Út og suður. Það eru svo magnaðir þættir og hann Gísli er svo magnaður að ég þarf bara ekkert að fara heim, fæ bara allt Ísland í æð.
Annars eru mamma og pabbi líka að koma og heimsækja MIG. takk fyrir takk
By
Nafnlaus, at 8:33 e.h.
Dream on sister.
Vil að fólk taki eftir því hvað sonur okkar er orðin mikill Aussie, með mullett. Ég harð banna að skottið sé klippt, það á að vaxa svo lengi sem hann býr hérna í Ástralíu.
By
Aslaug, at 10:19 e.h.
Athyglisvert þetta, lögfræðingur/knattspyrnumaður/redneck plan. Ég kann að meta mulletið.
Ég held að ég sé ekki einn um að vilja fleiri myndir hingað, en það gæti verið...
Kveðjur frá sumarparadísinni 101 Reykjavík.
By
Nafnlaus, at 12:08 f.h.
jr. hefur líklegast ekki langt að sækja fótboltahæfileikana, faðir hans skoraði eitt sinn magnaðast hjólhestaspyrnumark sem sögur fara af.
Kv.
Atli Freyr
By
Nafnlaus, at 11:50 e.h.
Líst vel á mullett-inn. Hlakka til að sjá hvernig hann verður þá orðinn þegar að brottför kemur ef það verður ekki fyrr en eftir einhver ár haha, hann verður orðinn frægur í Oz.
By
Nafnlaus, at 5:31 e.h.
p.s sammála Óla, fleiri myndir fleiri myndir fleiri myndir! Nota myndasíðuna sína Áslaug mín!! (veit það er mikið að gera núna en ég lifi í voninni um breytingu þar á þegar þú ert komin í frí, þá dembist myndirnar inn)
By
Nafnlaus, at 5:33 e.h.
Hæ litla fjölskylda. Alltaf gaman að lesa bloggið ykkar. Kveðja, Magga, Sigfús og Kristín Dóra
By
Nafnlaus, at 11:11 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home