miðvikudagur, janúar 18, 2006
Dæmi um hvernig son við eigum!
Loksins ákvað sonur okkar hjóna að hætta að nota bleyjur. Ég keypti kopp og var farin að reyna að fá hann til að pissa í hann áður en við fluttum hingað út, sem sagt fyrir nærri ári síðan. Ég tók svo aftur upp koppaþjálfun um tveggja ára afmæli Thors, en ekkert gekk. Föstudag fyrir rúmri viku ákvað Thor svo að hann væri hættur að nota bleyjur og hætti bara eins og ekkert væri. Hann er þrjóskur með eindæmum. Þegar Thor fór svo á leikskólann eftir þessa ákvörðun sína, ákvað hann að hann væri ekki hættur með bleyju á leikskólanum. Hann fékk því bleyju þar, þegar Angela sagði honum að foreldrar hans færu að koma að sækja hann vildi hann losna við bleyjuna strax. Bara svo ekki kæmist upp um þennan sérsamning hans við leikskólastelpurnar. Thor er mikill samningamaður.

|
3 Comments:
Hmmmm sneaky lawyer á uppleið kannski?! Það er nú um að gera að vera mikill samningamaður ef hann á að uppfylla lögmannsósk föður síns.
By
Nafnlaus, at 5:43 e.h.
Ég myndi nú bara segja að þarna væru að koma í ljós gáfurnar sem eru svo lýsandi fyrir ættina... 8)
By
Nafnlaus, at 5:52 f.h.
Þetta er nákvæmlega það sama og ég pullaði núna í fyrradag.... :/
By
Nafnlaus, at 12:51 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home