þriðjudagur, janúar 03, 2006
Nytt ar
Þá er komið nýtt ár. Gamla árið var ansi ævintýralegt hjá okkur fjölskyldunni og vona ég að það nýja verði það líka. Svo má alvaran fara að taka við eftir það. Við hjónin eigum í basli með að ákveða hvernig framtíðin eigi að vera. Þessi áramót áttu að vera tími ákvarðana en við erum enn jafn áttavilt. Mamma og pabbi eru hérna einn dag til viðbótar og svo er þeirri sælu lokið. Þetta er svona. Við systur og sonurinn höfum farið með þau um Perth þvera og endilanga, Thor hefur þurft að vera meira heima til að sinna vinnu. Áramótin voru með rólegra móti á þessu heimili, við borðuðum bestu nautasteikur veraldar held ég bara, skáluðum í kampavíni á miðnætti og fórum svo fljótlega að sofa. Við hjónin gengum niður að á og sáum rosalega flugeldasýningu rétt fyrir miðnætti. Engin þynnka þennan nýársdag. Fórum svo í dýragarðinn á nýársdag, Perth Zoo er rosalegur garður. Stoppuðum á barnum á leiðinni heim úr garðinum vegna hita og fengum okkur einn svell kaldan. Planið var að horfa svo á áramótaskaupið á netinu, þeir voru nú ekki svo hugulsamir á RÚV að setja það inná síðuna sína. Við systur höfum verið að semja kvörtunarsímtalið síðan á nýarsdag en ekki enn hringt. Höldum að þeir fatti ekki alveg alvarleikann þarna. Hafið það gott þangað til næst.

|
1 Comments:
Eeeeeengar áhyggjur, skaupið var svahahahakalega slappt svo þið misstuð ekki af neinu! Verið bara fegin og leigið ykkur góða spólu í staðin.
En jæææææja á ekki að fara að setja inn myndir á myndasíðuna??? Maður bíður og bíður og bíður....söknum ykkar.
By
Nafnlaus, at 7:15 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home