föstudagur, janúar 06, 2006
Siðasti dagur jola.
Jæja þá erum við aftur orðnar munaðarlausar systurnar. Mamma og pabbi eru lögð af stað heim en ekki komin á leiðarenda. Við erum búin að eyða jólunum í góðum gír. Fara á ströndina, borða góðan mat og skoða borgina okkar. Við hjónin höfum verið að fræða vini okkar hérna um íslensku jólasveinana. Sumir álíta okkur (Íslendinga) eitthvað klikk öðrum finnst þetta mun áhugaverðara en þessi feiti rauði og vilja taka upp siðinn að hafa þá 13 í stað eins. Flestum finnst þó þessi árátta að éta börn (Grýla og jólakötturinn) eitthvað meira en undarleg. Verð að viðurkenna að þegar maður segir svona frá þessu er þetta svolítið skrýtið. Það hefur margt spennandi gerst hjá syni okkar um jólin. Hann er farin að geta pissað í kopp meira en 10 dropum í einu. Hann er nú samt ekki alveg hættur með bleyju, við tökum bara einn dag í einu. Hann er líka orðin brúnni en mamma sín, þrátt fyrir sólarvarnarbað á hverjum morgni og nokkrum sinnum eftir það. Svo er Thor líka komin með nokkrar freknur í andlitið, sem er ekki algent á litlum börnum. Hann verður örugglega brúnn með freknur eins og pabbi sinn, ég verð svo bara með freknur. Ég hélt við værum öll rauðhærð en ég virðist vera sú eina á þessu heimili sem er þeim kostum gædd. Best að fara að koma sér út í sólina og vinna í tan-inu áður en næstu gestir koma. Get ekki alltaf verið hvítust... ég meina fólk er að koma úr Íslenskum vetri og slær mér samt við á nokkrum dögum hérna. Spáin er "hot and humid" max 37 gráður, loksins komið sumar í vestur Ástralíu. Nýjar myndir á myndasíðunni.

|
3 Comments:
Takk fyrir myndirnar, mjög gaman að sjá þær.
Það er nú líka takmark fyrir því hvað fólk leggur á sig til að fá smá lit, Katrín lagði sig greinilega fullmikið fram ef marka er myndirnar frá jólunum haha.
By
Nafnlaus, at 5:35 e.h.
Takk fyrir það Ásta mín. Maður verður að gera eitthvað þegar mamma mans er að breytast í blökkukonu.
Áslaug gastu ekki photosjoppað mömmu smá og gert hana aðeins hvítari, þetta gengur ekki.
By
Nafnlaus, at 6:17 e.h.
Myndin af Thor þegar hann er að leika jólatré er hugsanlega flottasta ljósmynd sem ég hef séð
By
Nafnlaus, at 12:54 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home