föstudagur, janúar 20, 2006
Tennis og krikket
Hversu lengan tíma tekur það mann að aðlagast nýju landi? Í febrúar erum við búin að vera hérna í Perth í heilt ár. Ég er byrjaður að horfa á tennis og krikket!! Ég stóð sjálfan mig að því að vera að ræða um krikket við einn nýsjálending um daginn og horfði á Ástralíu keppa við Suður Afríku. Í gær horfði ég spenntur á þegar heimamaðurinn ástralinn Layton Hewitt datt úr keppni á móti einhverjum argentínumanni. Leikurinn tók 3 klukkutíma! Það var frekar fyndið að hlusta á þulinn í sjónvarpinu. Þegar Layton var að skít tapa þá sögðu þulirnir bara: "Núna er argentínumaðurinn búinn að vera - hann getur ekki haldið út í 3 klukkutíma á móti Layton - núna kemur þetta". Ég trúði þessu alveg og auðvitað tapaði Layton 5 mínútum seinna og þulirnir þögnuðu. Þetta var eins og að hlusta á íslenska þuli lýsa tapleik hjá íslenska landsliðinu í handbolta. Ég varð mjög svekktur þegar minn maður tapaði!! Það huggaði mig að Ástralíu vann Suður Afríku í krikket. Einnig er Ástralía komin í úrslitakeppni HM í Þýskalandi 2006 og það gleður mig.
Ég veit ekki hvort að maður sé orðinn eitthvað ástralskur í sér. Kannski tekur það eitt ár að komast almennilega inn í nýtt umhverfi... kannski er maður orðinn smá ástralskur. Ég grilla þrisvar í viku, slátrarinn þekkir mig með nafni og ég fylgist með aðeins með veðreiðum, tennis, krikket og áströlskum fótbolta. En ég er víst ekki alveg búinn að aðlagast. Ég ætti að fylgjast með þessu alla daga og drekka bjór með. Ef ég geri það þá fæ ég víst ríkisborgararétt.....

|
1 Comments:
Mullet minn kæri...það er eina sem þig vantar. Kominn með grillið, bjórhaldarann og horfir á réttu íþróttirnar. Vantar bara stílíseringuna
By
Nafnlaus, at 12:53 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home