fimmtudagur, febrúar 23, 2006
Allt er nu til!
Hef tekið þá ákvörðun eftir að ég setti inn myndir síðast að uppljóstra hvað ég hef verið að gera á sunnudagsmorgnum undanfarið. Ég er komin í róðrarklúbb og hef lokið byrjendanámskeiði í róðri. Ég mæti kl 8 á sunnudagsmorgnum og nota handaflið til þess að komast upp og niður part af Swan River. Mér var nú ekkert alveg sama þegar ég heyrði að það kæmu stundum hákarlar upp ána. En vinkona mín sem er Ástrali sagði mér til huggunar (eða það var hennar tilgangur með því að segja mér þetta) að þetta væru "bullsharks" og þeir eru ekkert að leika sér að manni heldur bara drepa mann strax. Gott að vita það! Fyrir utan þessa hákarlahættu er þetta hin besta íþrótt og róar hugann að sigla um ána og njóta náttúrunnar í góðu veðri á sunnudagmorgni. Þessi róðrar áhugi minn hefur svo tekið nýja stefnu, ég er sem sagt komin í fjögurra mann lið og er að fara að keppa í róðri 19. mars. Við erum þrjár stelpur og einn strákur, sem þýðir að við verðum að keppa við strákaliðin, sanngjarnt? Ætli ég setji ekki myndir inn af mér og nýja áhugamálinu mínu þegar maðurinn minn og barn nenna að vakna og koma og horfa á mig róa. Þeim ber að sjálfsögðu skylda til að koma á keppnina. Þetta er samt bara svona góðgerðar fjáröflunarkeppni... ég stefni nú samt á sigur! Annað í fréttum er að ég er byrjuð aftur að læra, nú er bara mastersverkefnið mitt eftir. Verkefnið saman stendur af viðtölum sem verða svo vonandi að ritgerð með mikilvægum upplýsingum fyrir fagið. Samkvæmt minni heimildaleit er ekkert vitað um rannsóknarviðfangsefnið, þannig að það sem ég finn hlýtur að auðga tóman gagnagrunn. Ekki margir að velta því fyrir sér hvort kynferðisafbrotameðferðaraðilar trúa á meðferðina sem þeir veita. Skrýtið?? Thor (stóri) er farin að æfa fótbolta á ný. Þar sem hér er sumar og blíða var æfing á ströndinni í gær um sólarlagsbil. Við mæðginin fórum með og lékum okkur í sjónum og stórri sandholu sem einhver hafði grafið fyrr um daginn. Þegar ég var að hlaupa með Thor fram og til baka í fjöruborðinu, vorum að flýja öldurnar, hljóp framhjá okkur kona og spurði hvort ég væri að þessu til að þreyta guttann. Greinilega móðir sem skilur að maður vill að börnin sofni snemma.

|
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home