laugardagur, febrúar 25, 2006
Höfrungar og New Norcia
Verð aðeins að halda áfram með róðrarsögur. Ég fór í gærmorgun kl 6 að æfa fyrir keppnina í mars. Þegar við vorum búin að róa og vorum að ganga frá bátunum sá ég tvo höfrunga synda í uþb 5 metra fjarlægð frá mér. Ég hafði einmitt tekið eftir því hvað voru margir fiskar að vaka á vatninu og stökkva eitthvað í kringum bátinn þegar ég var að róa. Höfrungarnir hafa greinilega verið að koma til að fá sér morgunmat. Þetta var svo magnað að ég og Deanna stóðum bara í góða stund að fylgjast með þessum skepnum. Ótrúleg náttúra hérna í Perth. Í dag ákváðum við fjölskyldan að skella okkur útí sveit og skoða lítinn bæ sem heitir New Norcia. Bærinn er rúma 100 km norður af Perth. New Norcia saman stendur af kirkjum, klaustri, safni og hóteli. Þetta er eini klaustursbærinn í Ástralíu. Fyrir um 150 árum komu þangað munkar í St. Benedikts reglunni (eða eitthvað svoleiðis) og settust að úti í óbyggðum. Í bænum búa svo enn bara munkar sem gerir bæinn sérstakan. Þeir baka brauð, búa til olivuolíu, sultur og brugga vín sem má kaupa þarna, brauðið er líka hægt að kaupa í Perth. Þetta var mögnuð reynsla að koma þarna, og greinilegt að menn leggja ýmislegt á sig ef þeir trúa á eitthvað.

|
5 Comments:
Vá!! en geggjað áhugamál, hlakka til að sjá myndir. Þú verður þvílíkt mössuð í sumar þegar þú kemur heim tíhí.
Það eru alveg ótrúlegar ævintýrasögurnar sem þið eruð alltaf með, ég skil ekkert hvernig þið tímið að koma aftur heim! (en komið nú samt)
By
Nafnlaus, at 10:34 e.h.
Nei það er rétt Ásta. Þau eru líka ekkert að fara heim. Þau verða bara áfram hér í ævintýrunum með mér.
Hlakka til að sjá þig keppa í róðrinum systir. Vona að það verði eins kraftmikið eins og þegar þú varst að byrja að hjóla hér down under.
Katrin sys
By
Trína, at 3:25 e.h.
hvað segiru sástu höfrunga???? já láttu mig vita svo maður geti kíkt á þig í róðrinum...!!!
By
FJOLA, at 10:10 e.h.
Vá en æðislegt, var að kíkja aftur á síðuna þína eftir langt hlé. Þvílíkt ævintýri, róður, höfrungar, hákarlar, sól og sæla... ummm. Ekki laust við að maður er grænn, bæði af öfund og af sólarleysi. Þér til gamans máttu vita að það snjóaði á Íslandi í gær og það er bara kallt... aaatttjúúú!
Njótu, bestu kveðjur Marín
By
Nafnlaus, at 1:06 f.h.
Hæ öll sömul. Kíki nú ávallt reglulega og finnst geggjað að skoða myndirnar. Það er svo gaman að lesa um öll þessi ævintýri hjá ykkur og ég býð spennt eftir myndum af þér róa. Hvernig gekk svo í gær í keppninni? Ég var með afmælisveislu í gær því Bjarki Már verður 1 árs 22.mars og þá áttaði ég mig á því hvað tíminn líður hratt og að það líði að því að þið komið heim.
Heyrumst vonandi fljótlega á msn, kveðja María
By
Nafnlaus, at 7:12 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home