Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

föstudagur, mars 24, 2006 Hann er útsmoginn þessi litli kall

Hérna eru nokkrar sögur af Thor sem við viljum ekki gleyma og ætlum að geyma hérna.

Þegar hann vill segja að honum finnist eitthvað skemmtilegt þá segir hann "I'm like that".

Fjóla kom til að passa Thor um daginn. Thor fór strax í það að prófa hvað hann kæmist upp með hjá henni. Hann mátti fá nammi. Hann mátti fá horfa á sjónvarpið. Hún vildi leika það sem hann vildi leika. Það tók hann eina mínútu að átta sig á þessu og fleiru.

Til að sjá hversu duglegur þessi þjónn var þá settist hann á gólfið og sagði við Fjólu: "Thor kann ekki að labba". Hann tók í annan fótinn og sýndi henni og sagði: "Thor er með of litla fætur".

Ég held að með þessu hafi hann viljað láta Fjólu labba með sig útum allt. Svona eins og afi hans fékk að gera þegar hann kom í heimsókn.

Hann vildi fara út að hjóla í gær og sagði við mömmu sína í gær "Ég ætla að hjóla langt langt langt þannig að þú sérð mig ekki."

Síðan ætlar hann að fljúga einn til Íslands í bláu flugvélinni mamma hans og pabbi eiga að vera í rauðu flugvélinni. Hann vill ekki stoppa í Tælandi, Singapore, London eða Köben á leiðinni heim. "Fyrst til Íslands" sagði hann.

Við erum hætt að gefa honum nammi nema á laugardögum sem við köllum nammidag. Hann er sáttur við þetta og hættir að suða um eitthvað þegar hann heyrir að það er ekki nammidagur. En það eru bara tveir dagar í vikunni hjá honum. Þegar við segjum að það sé ekki nammidagur þá segir hann "ohhh, já það er sunnudagur" og þegar hann er svo spurður hvað klukkan er þá er hún alltaf átta.

Thor spurði mig hvort að ég vildi taka sængina hans niður í stofu og ég sagði já þá varð hann mjög hissa og sagði: "Ha þú sagðir já en ekki nei".

5 Comments:

  • Haha! snilldar gutti. Algjört möst að skrifa svona hluti niður, maður er svo flótur að gleyma

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:38 f.h.  

  • hehe já hann er ekkert eðlilega mikill húmoristi sá stutti og ekki má gleyma þegar við vorum í mat um daginn og sá stutti tilkynnti okkur "ég nenni þessu ekki lengur, er farinn að sofa" algjör SNILLINGUR...

    By Blogger FJOLA, at 9:55 e.h.  

  • Sumir soldið líkir pabba sínum ha!?! Kv. Rut

    By Anonymous Nafnlaus, at 9:18 e.h.  

  • Hallo,

    Gudrun Ingimundardottir heiti eg og svo skemmtilega vill til ad eg er rammislenskur skiptinemi herna i Perth thessa dagana. Thad vaeri kannski ekki i frasogur faerandi nema fyrir tha sok ad thad vaeri gaman ef vid islendingarnir gaetum rottad okkur saman einn godan vedurdag, thess ma einnig til gamans geta ad pabbi minn (Ingimundur Fridriksson) er aeskuvinur Kristjans, pabba Aslaugar. Litill heimur ekki satt?
    Kvedja Gudrun Ingimundar s:0415398861

    By Blogger Túbufíflið, at 2:38 e.h.  

  • Æ hann er svo mikið krútt.

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:34 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger