miðvikudagur, mars 22, 2006
Naglfar raiders og ANA rowing regatta 2006
Ég var að setja inn myndir frá róðrarkeppnisdeginum mikla. Liðið skipaði fremst Kvitka (Kanada), Chris (Ástralía), ég (Ísland) og Deanna (Kanada) aftast . Eins og þið sjáið var þetta alþjóðlegt lið. Liðið okkar fékk nafnið Naglfar raiders. Naglfar er auðvitað skip hinna dauðu úr goðafræðinni og raiders var viðbót komin frá Chris svo ástralir gætu borið fram amk hluta nafnsins, og eins og hann benti á voru víkingar raiders (árásarmenn). Chris hannaði svo mynd á boli fyrir okkur sem skapaði auðvitað heilmikinn liðsanda. Eftir 5 æfingar, sem er staðlaður fjöldi fyrir keppnina, hittust 40 lið á sunnudagsmorgni til að keppa um sigur. Við fórum því miður ekki heim með bikarinn, en þóttum standa okkur vel. Við vorum eina (kynja)blandaða liðið og urðum því að keppa við karlaliðin. Fyrra liðið sem við kepptum við vann okkur nokkuð vel, en seinna liðið vann okkur með einnar sekúndu mun. Ég var öskuill yfir þessu tapi, en maður verður bara að taka þessu eins og hverju öðru hundsbiti. Best var samt að seinna liðið var eitthvað að kommenta við okkur við ráslínuna að við væri bara stelpulið, það hlýtur að svíða að vinna svo ekki með meira en 1 sek. mun! Við vorum alla veganna með bestan tíma í okkar riðli, eins og eiginmaður minn benti mér á. Riðillinn var blönduð lið! Planið er svo að æfa á miðvikudagskvöldum þar til tími liðskvenna er liðin í Ástralíu. Ég held það verði ekki fleiri keppnir haldnar á þeim tíma, en ef svo væri, væri ég til í slaginn.

|
3 Comments:
Glæsileg frammistaða!! En er svona langt síðan að ég sá þig síðast að ég hreinlega þekki þig ekki í fjarlægð eða ertu þú ekki næst-öftust á bátnum, ekki öftust??
Mjög svo vígalegir bolir!
By
Nafnlaus, at 9:40 e.h.
Jú það er rétt ég er næst aftast, ekki aftast. D er aftast.
áslaug.
By
Aslaug, at 9:51 f.h.
Stolt af þér systir.
Katrín
By
Nafnlaus, at 5:07 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home