sunnudagur, apríl 16, 2006
Gleðilega paska
Þá er komið að páskum aftur. Við höfum verið að ræða það hvað allt virðist fara í hringi hérna. Við erum farin að upplifa árlega atburði hérna aftur sem segir aðeins eitt. Við erum búin að vera hérna meira en ár. Lætur manni líða eins og maður hafi verið lengi í burtu en líka að maður sé orðin hluti af samfélaginu. Það er ekki allt nýtt lengur. Páskahelgin er búin að vera góð hjá okkur fjölskyldunni. Í gær fórum við í BBQ í Victoria garðinum í East Perth ásamt öðrum Íslendingum hérna í Perth. Það var komin tími á að hittast og nokkrir nýjir Íslendingar bættust í hópinn. Við fengum rjómaveður og þetta var sérlega vel heppnað grill. Við hjónin höfðum búið til remúlaði eftir uppskrif landsliðskokka Íslands, þannig að nú var hægt að fá sér eina með öllu. Remúlaði er einmitt marg rædd fæða í Íslendingafélaginu í Perth. Eftir grillið fórum við svo í eins árs afmæli nágranna okkar. Þetta var ólíkt öðrum barnaafmælum sem við höfum farið í. Þarna var í boði kampavín og bjór ásamt þessu venjulega, kökur og annar matur. Þar sem við vorum ný komin úr grilli sötraði ég því bara kampavín með húsfrúnni sem var orðin ansi kennd þegar við fórum. Við fengum send páskaegg að heiman og Thor er búin að vera ákvaflega spenntur fyrir páskunum. Hann var því fljótur að segja mér í morgun að það væru komnir páskar og tími á eggin. Nú er eggið hans farið sína leið upp í munn og ofan í maga. Katrín og Grétar komu í hádegismat, þetta var eins og á alvöru sveitaheimili. Pörusteik, heimagert rauðkál, sósa og brúnaðar kartöflur í sunnudagshádegi. Katrín þarf að vinna í kvöld og því var kvöldmatur í hádeginu. Fyrir elju í eldhúsinu hef ég fengið viðurnefnið Martha Stuart á meðal ungra námsmanna hérna. Ég vona svo bara að ég endi ekki í fangelsi eins og hin eina sanna Martha. Gleðilega páskahátíð allir saman.

|