Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

sunnudagur, apríl 16, 2006 Gleðilega paska

Þá er komið að páskum aftur. Við höfum verið að ræða það hvað allt virðist fara í hringi hérna. Við erum farin að upplifa árlega atburði hérna aftur sem segir aðeins eitt. Við erum búin að vera hérna meira en ár. Lætur manni líða eins og maður hafi verið lengi í burtu en líka að maður sé orðin hluti af samfélaginu. Það er ekki allt nýtt lengur.
Páskahelgin er búin að vera góð hjá okkur fjölskyldunni.
Í gær fórum við í BBQ í Victoria garðinum í East Perth ásamt öðrum Íslendingum hérna í Perth. Það var komin tími á að hittast og nokkrir nýjir Íslendingar bættust í hópinn. Við fengum rjómaveður og þetta var sérlega vel heppnað grill. Við hjónin höfðum búið til remúlaði eftir uppskrif landsliðskokka Íslands, þannig að nú var hægt að fá sér eina með öllu. Remúlaði er einmitt marg rædd fæða í Íslendingafélaginu í Perth.
Eftir grillið fórum við svo í eins árs afmæli nágranna okkar. Þetta var ólíkt öðrum barnaafmælum sem við höfum farið í. Þarna var í boði kampavín og bjór ásamt þessu venjulega, kökur og annar matur. Þar sem við vorum ný komin úr grilli sötraði ég því bara kampavín með húsfrúnni sem var orðin ansi kennd þegar við fórum.
Við fengum send páskaegg að heiman og Thor er búin að vera ákvaflega spenntur fyrir páskunum. Hann var því fljótur að segja mér í morgun að það væru komnir páskar og tími á eggin. Nú er eggið hans farið sína leið upp í munn og ofan í maga.
Katrín og Grétar komu í hádegismat, þetta var eins og á alvöru sveitaheimili. Pörusteik, heimagert rauðkál, sósa og brúnaðar kartöflur í sunnudagshádegi. Katrín þarf að vinna í kvöld og því var kvöldmatur í hádeginu.
Fyrir elju í eldhúsinu hef ég fengið viðurnefnið Martha Stuart á meðal ungra námsmanna hérna. Ég vona svo bara að ég endi ekki í fangelsi eins og hin eina sanna Martha.
Gleðilega páskahátíð allir saman.

5 Comments:

  • Gleðilega páska :o)

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:36 e.h.  

  • Hæ hæ öll sömul. Það er alltaf jafn gaman að kíkja á hvað er að frétta af ykkur.
    Ég vildi bara vera viss um að þú (Áslaug) hafir frétt af blogginu. http://blogg.central.is/1977moso

    Kveðja María

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:34 e.h.  

  • Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Thor, hann er 3ja ára í dag!!!! Veiiiiiiii, veiiiiiiiiiiiiiii

    Til hamingju með daginn, elsku vinur.

    Kveðja frá Englandi,
    Kristján Ingi og fjölskylda

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:09 e.h.  

  • Til hamingju með afmælið Thor og bestu kveðjur frá Ásu langömmu.


    Áslaug Kristjánsdóttir

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:53 e.h.  

  • Til hamingju með afmælið Thor, ja hérna 3ja ára!! úff hvað maður er orðinn stór. Hafðu góðan afmælisdag í sólinni.

    By Anonymous Nafnlaus, at 8:39 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger