mánudagur, maí 01, 2006
Afmæli verkalýðsleiðtogans
Thor jr. á afmæli í dag.

"It's my birthday day" eins og hann segir sjálfur. Við héldum afmælisveislu fyrir hann í gær. Nokkrir vinir okkar komu og fengu sér kökur og gos. Thor fannst best að gestirnir komu með pakka. Við gáfum Thor litla tölvubók (leap pad), tölva sem les bækur, kennir börnum að reikna og undirbýr þau fyrir lestrarkennslu. Thor tók tölvuna sína og sagðist ætla upp að vinna eins og pabbi. Það læra börn sem fyrir þeim er haft!
 Thor fékk fótboltabúning í gjöf og var mjög ánægður. Verst að þetta er ekki rétta liðið.
Í dag hélt Thor uppá afmælið sitt á leikskólanum, við fórum með köku með nammi á og vakti það mikla lukku. Thor var áður búin að segja öllum á leikskólanum að hann ætti afmæli í dag. Vildi greinilega ekki missa af hamingjuóskum.
 Kaka 2 daga í röð kemur skapinu í lag.

|
3 Comments:
Halló, til hamingju með strákinn. Ég datt inn á þessa síðu en við bjuggum í Townsville í QLD og elskuðum að vera þar. Væri til í að koma aftur, hver veit. Hafið það rosalega gott þarna
"down under"
kveðja
Jóna
www/barnaland.is/barn/949
By
Nafnlaus, at 11:07 e.h.
til hamingju með afmælið Thor, pakkinn bíður á Íslandi.
Snorri og Magnea
By
Nafnlaus, at 3:16 f.h.
Til hamingju með afmælið stóri strákur:)
kv. Edda og fjölsk.
By
Nafnlaus, at 3:45 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home