Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

þriðjudagur, maí 09, 2006 Heim á klakann

Þá er Ástralíu ævintýrið senn á enda. Við erum búin að kaupa flugmiða heim. Við förum frá Perth til Singapore 14.júní og stoppum í 2 daga. Síðan förum við til köben 17.júní að heimsækja vini okkar sem búa þar og fljúgum síðan til Íslands 21.júní.

Það er margt sem maður hefði viljað sjá í Ástralíu áður en maður færi heim. En það er líka mjög margt sem við höfum fengið að upplifa og kannski erfitt að ná öllu.

Okkur hefur alltaf langað til að fara og skoða Melbourne þannig að við ætlum að skella okkur í helgarferð um næstu helgi. Thor jr. ætlar að koma með okkur og er búinn að láta okkur vita að flugvélin sé blá á litinn. Hann verður eflaust fyrir vonbrigðum þegar hann sér að Quantas er með hvítar og rauðar flugvélar. Þetta verður svona smá æfing fyrir 12-13 tíma flug frá Singapore til Köben.

Þegar við fluttum til Ástralíu þá gáfu bræður mínir okkur 100 dollara svo að við gætum ferið að að heimsækja Harald Bishop en hann er karekter í sápuóperunni "Nágrannar" sem er tekin upp í Melbourne. Við ætlum að sjá til hvort að við förum að heimsækja Ramsey street! En ég kynnti mér þetta aðeins og það er hægt að fara að heimsækja stúdíóið - og ég heyrði að framleiðendur þáttanna eru búnir að banna leikaranum sem leikur "Toby" eða "Körtuna" að taka á móti gestum. Hann er víst búinn að sofa hjá svo mörgum konum sem að koma þarna að það er orðið vandamál.... það held ég nú

5 Comments:

  • Yndislegt að heyra að heimkoman sé orðin staðfest. Hlakka til að fá ykkur heim.
    Aldís

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:16 e.h.  

  • Ég myndi hiklaust sofa hjá Todie.

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:30 f.h.  

  • OHHH yndislegt að fá ykkur heim! Ótrúlegt að þá sé 1,5 ár síðan maður sá ykkur síðast!
    Úff naumast Todie er vinsæll, frekar skondið tíhí. Hlakka til að fá Ramsey sögur og myndir.

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:44 e.h.  

  • Það verður gaman að hitta ykkur í Köben á leiðinni heim. Ekki gleyma að taka bjór hulstrið með ;)

    By Anonymous Nafnlaus, at 4:27 e.h.  

  • Sæl kæra fjölskylda! Endalaust gaman að sjá nýjar myndir af littla Thor sem er sárt saknað hér í Perth og einnig nýjar bumbumyndir! bíð eftir næstu bloggfærslu hehe

    Saknaðarkveðjur
    Fjólansky

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:07 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Powered by Blogger