Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

Blogg

mánudagur, febrúar 28, 2005


Það er ekkert betra en að setjast í sófann sinn eftir erfiðan dag og fá sér ís. Foreldrarnir öfunda jr. útaf sófanum. En þau fóru í Freedom við Albany highway og pöntuðu sófa. Hann kemur eftir 3 vikur - en þangað til verða útihúsgögnin að duga.
Thor og Áslaug


Thor fann þetta skemmtilega borð í IKEA og neitaði að fara þaðan. Eftir miklar samningaviðræður og útskýringar þá tókst okkur að taka hann og borðið heim.
Thor og Ã?slaug

föstudagur, febrúar 25, 2005

Hello
Þá er ég líka komin með aðgang að blogginu. Best ég komi með stutta útgáfu af því sem er búið að gerast síðan við fórum að heiman.
Við flugum til London 3. febrúar og vorum þrjá daga hjá vinum okkar sem búa rétt utan við London. Takk kærlega fyrir okkur Jói, Inga og Kristján Ingi. Við skoðuðum bæinn þeirra St. Albans og fórum einu sinni inní London. Þó heimþráin hafi verið á versta stigi þarna var þetta mjög notalegur tími.




Næst var það Singapore sem við heimsóttum. Tókum stutt 12 tíma flug þangað. Það var nú mun skárra en mig hefði grunað. Við gistum á drauma hóteli og skoðuðum þessa drauma borg í 5 daga. Margt skemmtilegt að sjá þarna, ótrúlega hrein og skemmtileg á allan hátt. Fengum okkur Singapore Sling á Long Bar sem var hinum megin við götuna frá hótelinu okkar. Fengum að taka glasið út því við vorum með barnið með okkur - stálum svo náttúrulega glasinu. Veðrið var gott í Singapore og ágætis æfing fyrir Perth. Við keyptum ekki mikið þarna því við lentum inní Kínversku nýári. Fengum bara flugeldasýningar og dansandi dreka í staðin fyrir búðaráp.



Jr. lærði nýtt orð í Singapore - ljónið. Enda þýðir Singapore eitthvað á þá leið borg ljónsins.
Við kvöddum Singapore að föstudagskvöldi 11.febrúar og héldum yfir til eyjunnar fögru. Við vorum ekki beint hress þegar við bókuðum okkur inn á Hótel Satans eins og maðurinn minn hefur líst því áður. Ég held að heimþráin hafi farið á það stig þegar þangað kom að við hefðum farið heim hefði það verið í boði. Daginn eftir leigðum við bíl og hringdum í einu manneskjuna sem við vissum að talaði íslensku og þekkti Perth meira en við - aka Auðbjörgu. Hún gaf okkur góð ráð um íbúðaleit. Til að gera langa sögu stutta fluttum við inní húsið okkar á miðvikudegi. Keyptum rúm og borðuðum kvöldmatinn af ferðatösku.


Síðan þá höfum við verið að kynnast Perth og líkar okkur vel það sem við sjáum. Ástralir eru mjög vinalegir og hjálplegir. It´s all good. Curtin (skólinn minn) kemur vel út. Hlakka til að byrja þar á mánudag. Fysti tíminn er Sexology hjá Gareth Merriman. Og hann er mjög merry.
Jæja meira næst,
Áslaug en ekki asslag

miðvikudagur, febrúar 23, 2005

Það er búið að vera nóg að gera og lítill tími gefist til að blogga. Áslaug er á kynningu í skólanum og Thor jr. er sofandi þannig að ég ætla að blogga nokkrar línur.

Við leigðum okkur raðhús nr. 1 á Coode Street 16 eftir að hafa dvalið á hóteli Satans í nokkrar nætur http://www.australia-hotels.com.au/5421p1-perth-hotels-aarons.html - þetta var kannski ekki alslæmt hótel en eftir að hafa verið á 5 stjörnu hóteli í Singapore http://www.rafflescityhotels.com/raffles/ þá var þetta eins og að flytja inn á KFUM. Daginn eftir að við lentum þá leigðum við okkur bíl, keyptum okkur dagblað og fórum að skoða íbúðir. Við fengum 40 stiga hita og glampandi sól - sem var ekkert sérlega gott - vindurinn var eins og að maður stæði fyrir framan hárblásara á hæsta hita. Sem betur fer fundum við búð sem seldi ís og bíllinn var með góða loftkælingu. Við keyrðum um alla Perth (vinstri umferð) og fengum tilfinningu fyrir hverfunum. Það var verið að sýna nokkrar íbúðir um helgina 12-13. feb en ekkert sem okkur leist á. Á mánudeginum fórum við á fasteignasölu og þeir sýndu okkur eitt raðhús sem okkur leist vel á. Við vildum endilega leigja það og gengum frá leigusamningi daginn eftir. Við máttum fá lyklana helgina eftir en tókum það ekki í mál og fluttum inn um morguninn. Í Ástralíu leigja fasteignasölur út hús fyrir fólk. Þar sýnir fasteignasalinn eignina og vinnur fyrir peningunum - ekki eins og á Íslandi þar sem að fasteignasalar gera nánast ekkert.



Coode street 1/16 - South Perth 6151, Western Australia

Það er tvöfaldur bílskúr fyrir aftan húsið. 3 svefnherbergi (þannig að það er pláss fyrir gesti) á efri hæðinni og 2 baðherbergi. Stór stofa og samliggjandi eldhús og eitt baðherbergi á neðri hæðinni. Svalir og stór garður á bakvið og fyrir framan.



Það er víst ágætis útsýni úr garðinum og af svölunum okkar.

Eftir að við vorum búin að henda töskunum inn þá fórum við í Harvey Norman (3. ríkasti maður Ástralíu) og keyptum okkur rúm.

Eins og ástralir segja þá var þetta "no worries" eða ekkert mál !! Verð þó að viðurkenna að við vorum gjörsamlega búin eftir þetta - Hótel Satans var algjör paradís eftir erfiða daga. Jæja þá er jr. vaknaður.

laugardagur, febrúar 19, 2005

G'day mate !! Núna er ég búinn að setja upp vefsíðuna sem verður notuð til þess að blogga á. Þetta ætti að duga til þess að leyfa fólki að fylgjast með því sem við erum að gera hérna í Ástralíu. Þetta tók smá tíma - er að nota módem tengingu við Ástralska landsímann - auðvitað versla ég ennþá við landsímann annað væri rugl :-).

Powered by Blogger

Eldra blogg