miðvikudagur, maí 25, 2005
Nick Cave
Við hjónin skelltum okkur á Nick Cave & The Bad Seeds tónleika á sunnudaginn og skemmtum okkur mjög vel. Warren Ellis fiðluleikarinn í Bad Seeds reddaði okkur miðum og "back stage" aðgangi.
Þeir tóku helling af lögum af nýju plötunni auk þess að taka gamla slagara eins og: "The Weeping Song", "Red Right Hand", "Do you love me", "Deanna", "The Ship Song", "The Mercy Seat" ofl. Þetta voru stuð tónleikar og greinilegt að hljómsveitin eldist vel.
The Darling Downs hituðu upp fyrir tónleikana og þeir komu nokkuð vel út.
Við skelltum okkur baksviðs eftir tónleikana til að bragða á rauðvíni og hitta hljómsveitina. Ég spjallaði aðeins við Nick og spurði hvort að hann vildi ekki halda aðra tónleika á Íslandi. Hann hafði áhuga á því. Það var mjög mikið að skrítnu Áströlsku liði þarna baksviðs. Við hjónin vorum kannski þau sem voru öðruvísi þarna. Hljóðmaðurinn var að venju mökkaður (eins og á Íslandi) og við urðum t.d. vitni að því hvernig dyraverðir útvega hljómsveitum grúppíur.
Erlend og Auðbjörg pössuðu jr. fyrir okkur um kvöldið. Jr. fékk sem sagt að stjórna þeim allt kvöldið. Enda er hann mikill herforingi og veit hvað hann vill. Í morgun kom t.d. í ljós hversu mikil herforingi hann er þegar hann sagði við mömmu sína að fara að læra þegar ég ætlaði að keyra hann í leikskólann og spurði hvort að Áslaug vildi koma með. "Nei - mamma læra".
Þessa daga eru leikskólakennararnir að fara með hann í stuttar heimsóknir yfir á nýja deild. Núna er hann að fara á deild með eldri krökkum og þá fer hann eflaust að tala meiri ensku og getur þá sagt: "No - mom study".
Síðan er smá fróðleiksmoli í lokin: G´day = Halló No worries = Auðvitað, ekkert mál. Your shout! = Kauptu handa mér drykk! BYO = Bring your own (wine).
fimmtudagur, maí 19, 2005
Thor does Australia and NZ
Við hjónin erum ekkert smá dugleg að blogga eða þannig. Svo að fólk hætti ekki að kíkja á síðuna þá ákvað ég að henda inn nokkrum fréttum.
Það er komið vetrarveður hérna. Það koma íslenskir rigningardagar hérna og síðan 20 stiga + og sól inná milli. Minnir á íslenska sumarið nema það er ekki 20 stiga hiti á sumrin heima.
Við erum að fara í Eurovision partý á morgun hjá Auðbjörgu, Fjólu og Erlend með jr. Við munum horfa á keppnina sem er í kvöld þannig að það er bannað að kíkja á mbl.is á morgun.
Á sunnudaginn ætlum við að skella okkur á Nick Cave and The Bad Seeds tónleika hérna í Perth. Fiðluleikarinn Warren Ellis ætlar að redda okkur miða og jafnvel fáum við að hitta hljómsveitina baksviðs eftir tónleikana.
Áslaug er að sigla inn í próftímabilið en síðasti skóladagurinn er 2.júní. Prófin eru síðan búin 22.júní og þá er komið frí. Erum ekkert búin að plana fríið en eitthvað skemmtilegt verður gert.
Sjálfur er ég að fara í söluferð til Adelaide, Sydney og Auckland á Nýja Sjálandi. Þetta verður viku ferð og á meðan verða Áslaug og jr. í Perth.
Thor kann núna nokkur orð í ensku og getur sagt: "Boat, baby, dummy (snuð), I, me". Hann sagði t.d. Thor baby áðan. Hann er að stækka og stækka, fer sjálfur upp leiktæki og niður rennibrautina og er farinn að tala mjög mikið.
Við erum bara í góðu stuði. It´s all good mate.
föstudagur, maí 06, 2005
Little Creatures !!
Ég og jr. vöknuðum eldsnemma um daginn til að horfa á Liverpool-Chelsea. Þar sem jr. á að verða knattspyrnumaður/lögfræðingur þá er eins gott að venja hann við að horfa á fótbolta. Ekki nennir Áslaug að horfa á þetta þannig að það er fínt að fá smá félagskap. Við förum reglulega út að labba með fótboltann hans þannig að hann geti æft sparkið. Jr. var bara nokkuð ánægður með fótboltann og benti á sjónvarpið og sagði: "Bolti, gras, labba, sparka". Hann náði íslensku íþrótta þulunum mjög vel - en þeir segja varla mikið meira en þetta. Úrslitin voru vonbrigði og ég öskraði t.d. þegar Eiður brenndi dauðafæri á síðustu mínútunni. Áslaug vaknaði við það og hélt að eitthvað hafi komið fyrir.
Ég skellti mér á pöbbarölt um daginn með Finni og þá meina ég um daginn - byrjuðum klukkan 14:00. Finnur er í tölvubransanum hérna og búinn að búa í Ástralíu í nokkur ár. Hann er að vinna núna hjá Fosters og vildi endilega sýna mér pöbbana og fræða mig um bjórana hérna í Perth. Við fórum á 7 pöbba og fengum okkur 8 tegundir. Þetta var mjög skemmtilegt og núna er ég búinn að kynnast mikið af góðum bjórum og pöbbum. Ég er kominn með uppáhalds og hann heitir Little Creatures. Little Creatures er bruggaður í Fremantle sem er mjög skemmtilegur bær við ströndina vestan við Perth. Fremantle er hippastaður með mjög skemmtilegum týpum. Fremantle stundum kallaður höfuðborg fish and chips í Ástralíu en þarna er risa veitingastaður sem selur bara fish and chips.
Það er mjög gaman að skella sér til Fremantle og við erum búin að fara þangað nokkrum sinnum. Það er t.d. mjög gaman að heimsækja brugghús Little Creatures. Þetta er samt ekki bara brugghús heldur líka bar og veitingastaður. Við fjölskyldan skelltum okkur þangað fyrir stuttu og fengum okkur grillaðar rækjur vafðar í hráskinku, eldbakaða pizzu með hráskinku og Little Creatures Pale Ale (besti bjór í heimi). ATH þeir sem koma í heimsókn til okkar verða neyddir í skoðunarferð þangað það þýðir ekkert að mótmæla því !!!
 Hérna er brugghúsið.
 Það voru ekki margir á staðnum enda mættum vil klukkan 11 um morguninn. Hipparnir voru samt að týnast inn og staðurinn fyllist víst í hádeginu.
 Thor vildi skella sér yfir til pabba.
 Jr. er ekkert sérstaklega hress þegar foreldrarnir vilja bara taka myndir af honum.
 Þarna er helmingurinn af eldhúsinu og þar sem bjórinn er bruggaður.
 Það er stærðarinnar bar þar sem maður getur keypt sér kassa af bjór ef maður er mjög þyrstur.
 Hérna er önnur mynd fyrir framan brugghúsið/veitingastaðinn/pöbbinn en fyrir aftan er bátastæði þar sem fólk getur lagt bátnum og farið og fengið sér bjór. Þegar við ákváðum að fara þá var svo heitt að ég neyddist til að kaupa einn kassa :).
Annars er líka í fréttum að við vorum að fá kassana okkar en þeir voru bara 2 og 1/2 mánuð. Eitthvað moðhausa flutningsfyrirtæki sem starfar með Eimskip flutti kassana okkar frá Singapore til Melbourne og þaðan til Perth. Jr. var mjög ánægður með að fá bangsana og eldhúsið sitt. Eimskip voru almennilegir og ætla að gefa okkur afslátt af búslóðarflutningum þegar við flytjum aftur heim í staðinn fyrir þetta.
Ætli einn gámur af Little Creatures teljist sem búslóð?
sunnudagur, maí 01, 2005
Afmæli Thors
Þá er frumburður okkar orðin tveggja ára. Tíminn líður hratt á suður hveli jarðar. Við áttum góðan dag í sól og blíðu með vinum. Við bökuðum kökur og buðum uppá sausage rolls (pulsur í deigi sem maður fær út um allt hérna). Ákváðum að gera þetta svolítið ástralskt fyrst við erum hérna. Vinir okkar frá Vestmanneyjum komu og krakkarnir sem búa á Mounts Bay. Þetta var bara vel heppnaður afmælisdagur að hausti. Meira samt eins og sumar í dag. Thor hafði valið sér glös og diska í party búð sem við mæðginin fórum í um daginn. Tók dótið úr hillunni og sagði við mig "borga". Hann veit hvað hann vill. Thor var ekkert of ánægður með alla athyglina og fór næstum að gráta þegar afmælissöngurinn var sunginn. Í gær héldum við grillveislu fyrir skólasystkini mín. Það var mjög gaman að hittast og borða og drekka. Thor fékk þá tækifæri til að hitta krakkana og litli til að leika við fleiri en foreldra sína. Leanne kom með sápukúlur til að leika við Thor og féll honum það vel. Gott kvöld með góðum hópi. Á föstudag átti Ásgeir Vestmanneyingur afmæli, hann varð 7 ára. Hann fékk alklæðnað merktan ÍBV. Við fórum með honum út að borða og auðvitað fjölskyldunni hans. Þau buðu okkur í pizzu á veitingahúsi á Albany highway sem er skemmtileg gata með fullt af búðum og veitingastöðum. Það var mjög skemmtilegt kvöld og mikið blásið á afmæliskertið hans Ásgeirs. Thor borðaði fullt af pizzu því hann mátti blása á kertið á milli bita. Við fórum í circus Ashton á mánudag í afmælisskyni líka og afmælisgjafirnar báru þess keim - bæði Ásgeirs og Thors. Ætli við getum ekki látið þá vinna fyrir sér næsta sumar með circusnum. Á morgun er fríið mitt frá skólanum búið og ég fer ekki í frí aftur fyrr en ég fer í upplestrarfrí. Ég klára svo önnina 22. júní með einu lokaprófi. Ég þarf að skila verkefnum í flestum kúrsum en tek próf í einum. Þannig það verður nóg að gera næstu vikur og reynt að fara í vettfangsferðir. Næstu helgi verður sexpo hérna í Perth, hlakka til að sjá hvað verður þar. Adultshop.com sér um þessa sýningu. Curtin verður örugglega með bás næsta ár en við verðum bara gestir þarna núna. Hafið það gott og virðið verkalýðinn í dag. Einnig eru komnar inn nýjar myndir á "Heimasíða Áslaugar". Áslaug

|