laugardagur, júní 18, 2005
17. júní og Zoo
Það kom upp smá heimþrá í okkur í gær. Það er ekki oft sem við höfum verið erlendis á 17.júní. Til að halda upp á þjóðhátíðardaginn þá fórum við í göngutúr. Þar sem það er vetur hérna þá vorum við með ekta íslenskt sumarveður. 15 stiga hita og útlit fyrir rigningu.
 Thor finnst mjög gaman að labba í pollum. Þessi mynd er tekin úr garðinum fyrir framan húsið okkar og miðbær Perth er í bakgrunni.
Við fórum á kaffihús og fengum okkur köku og heitt súkkulaði. Þetta er svona svipuð rútína eins og heima á 17.júní. Göngutúr og kaffihús. Það vantaði bara 50.000 manns á göngustíginn og sorgleg skemmtiatriði.
Áslaug er að lesa fyrir síðasta prófið sitt en það verður á miðvikudaginn. Eftir prófið er hún komin í vetrarfrí. Svo að Áslaug gæti fengið lestrarfrið þá skelltum við jr. okkur í Perth Zoo í morgun.
Þar sáum við ljón, tígrisdýr, blettatígur, apa, leðurblökur, fíla, kengúrur, nashyrninga .... og flest önnur dýr sem hægt er að skjóta. Þegar maður sér svona mörg dýr þá klæjar manni í gikk-puttann.
 Það sést ekki nógu vel en Thor er að benda á einn fullorðinn nashyrning og einn unga.
 Þegar þessi blettatígur kom uppað okkur þá sagði Thor: "Nei - hitt ljónið". Þessi var sem sagt ekki nógu spennandi og þá fórum við að skoða hitt ljónið. Þá var sagt: "váááá".
Það var furðulega gaman að fara í dýragarðinn og persónulega finnst mér aparnir vera skemmtilegastir.
Kjúlli á grillið í kvöld og honum verður skolað niður með einum köldum.
þriðjudagur, júní 14, 2005
Perth - Adelaide - Sydney - Auckland - Perth
Núna er ferðalaginu um Ástralíu og Nýja Sjáland lokið. Það var bara stoppað í 2 daga á hverjum stað og tíminn hefði mátt vera lengri.
Adelaide er í Suður Ástralíu og er skemmtileg borg þar sem er stutt er í golf, vínekrur og á ströndina. Ég var mestmegnis í miðbænum og spilaði golf þegar það var ekki verið að funda. Eftir Adelaide var flogið til Sydney.
Sydney er æðisleg borg. Miðbærinn er ótrúlega skemmtilegur. Sydney stendur við vogskorin fjörð og fólk ferðast mjög mikið með ferjum á milli staða. Maður er fljótari að sigla á milli hverfa heldur en að keyra. Ég skoðaði miðbæinn og hverfið þar sem ólympíuleikarnir voru haldnir. Eins og með hina staðina þá var maður of stutt þarna. Nokkuð ljóst að maður verði að fara aftur til Sydney með Áslaugu.
 Eftir Sydney var flogið til Auckland á Nýja Sjálandi. Auckland er stærsta borg Nýja Sjálands og fyrir þá sem sáu "Once were warriors" þá var myndin tekin upp þar. Ég rakst einmitt á einn mára sem var Tattoveraður í framan. Væri ekki til í að hitta einn slíkan í skuggasundi. Nýja Sjáland er skemmtilegt land. Þeir eru víst frægir fyrir landbúnað og fisk. Flytja mjög mikið af landbúnaðarvörum til Bandaríkjanna og Asíu.
Ég held að ég hafi líka séð staðinn þar sem Peter Jackson tók upp myndina "Brain Dead". Á eftir að kanna það.
Þetta var skemmtilegt ferðalag en alltof stutt og nær allur tíminn fór í vinnu. Það var gaman að skoða fleiri borgir í Ástralíu og ég uppgötvaði í þessari ferð hvað Perth er í raun og veru æðisleg borg.
Hérna er gott að búa....
fimmtudagur, júní 02, 2005
G'day mate
Jæja þá er síðasti skóladagur þessarar annar búinn. Ég á bara eftir eitt próf og eina kynningu á verkefni og þá er ég búin með 1/3 af náminu. Veit ekki hvort mér finnst það eitthvað gleðiefni. Mér finnst nefnilega mjög gaman í skólanum og langar ekkert að hætta þessu strax. Svindl að vera fjögur ár í hjúkrunarfræðinni og fá svo bara 1 1/2 í sexology-unni. Er að hugsa um að bæta við mig hérna amk einni önn svo ég fái líka postgraduate diploma í sexology, það er þá allir kúrsarnir í masters programminu fyrir kynlífsfræðina en ekki önnur masters ritgerð. Er núna að reyna að ákveða hvert ritgerðarefnið mitt á að vera fyrir masters ritgerðina. Það er of margt sem fólki þettur í hug að gera sem er ólöglegt varðandi kynlífshegðan, og mér finnst mjög erfitt að velja eitthvað eitt. Of margir perrar, bara ein ritgerð. Annars á léttari nótunum. Thor er komin á nýja deild á leikskólanum (búin að eldast um eina deild) og þvílík breyting. Hann er miklu hrifnari af eldri börnunum og er farin að tala fullt af áströlsku á einni viku. Þegar við sóttum hann í dag talaði hann ekki um bíla eins og vanalega heldur "ka" sem er náttúrulega car. Angela leikskólakennari sagði okkur svo sögu um það þegar hún sagði við Thor að hún ætlaði að sækja kisa (hvítur köttur sem hann fékk í Singapore og hefur fylgt honum æ síðan og er kallaður "kísha" á leikskólanum). Þá sagði okkar bara nei pussy-cat. Það sem okkur finnst samt en merkilegra er að einn strákur sem er oft með Thor á leikskólanum var að herma eftir okkur tala íslensku einn daginn. Þannig Thor lærir þeirra mál og þau hans. Þangað til næst, Áslaug

|