laugardagur, febrúar 25, 2006
Höfrungar og New Norcia
Verð aðeins að halda áfram með róðrarsögur. Ég fór í gærmorgun kl 6 að æfa fyrir keppnina í mars. Þegar við vorum búin að róa og vorum að ganga frá bátunum sá ég tvo höfrunga synda í uþb 5 metra fjarlægð frá mér. Ég hafði einmitt tekið eftir því hvað voru margir fiskar að vaka á vatninu og stökkva eitthvað í kringum bátinn þegar ég var að róa. Höfrungarnir hafa greinilega verið að koma til að fá sér morgunmat. Þetta var svo magnað að ég og Deanna stóðum bara í góða stund að fylgjast með þessum skepnum. Ótrúleg náttúra hérna í Perth. Í dag ákváðum við fjölskyldan að skella okkur útí sveit og skoða lítinn bæ sem heitir New Norcia. Bærinn er rúma 100 km norður af Perth. New Norcia saman stendur af kirkjum, klaustri, safni og hóteli. Þetta er eini klaustursbærinn í Ástralíu. Fyrir um 150 árum komu þangað munkar í St. Benedikts reglunni (eða eitthvað svoleiðis) og settust að úti í óbyggðum. Í bænum búa svo enn bara munkar sem gerir bæinn sérstakan. Þeir baka brauð, búa til olivuolíu, sultur og brugga vín sem má kaupa þarna, brauðið er líka hægt að kaupa í Perth. Þetta var mögnuð reynsla að koma þarna, og greinilegt að menn leggja ýmislegt á sig ef þeir trúa á eitthvað.
fimmtudagur, febrúar 23, 2006
Allt er nu til!
Hef tekið þá ákvörðun eftir að ég setti inn myndir síðast að uppljóstra hvað ég hef verið að gera á sunnudagsmorgnum undanfarið. Ég er komin í róðrarklúbb og hef lokið byrjendanámskeiði í róðri. Ég mæti kl 8 á sunnudagsmorgnum og nota handaflið til þess að komast upp og niður part af Swan River. Mér var nú ekkert alveg sama þegar ég heyrði að það kæmu stundum hákarlar upp ána. En vinkona mín sem er Ástrali sagði mér til huggunar (eða það var hennar tilgangur með því að segja mér þetta) að þetta væru "bullsharks" og þeir eru ekkert að leika sér að manni heldur bara drepa mann strax. Gott að vita það! Fyrir utan þessa hákarlahættu er þetta hin besta íþrótt og róar hugann að sigla um ána og njóta náttúrunnar í góðu veðri á sunnudagmorgni. Þessi róðrar áhugi minn hefur svo tekið nýja stefnu, ég er sem sagt komin í fjögurra mann lið og er að fara að keppa í róðri 19. mars. Við erum þrjár stelpur og einn strákur, sem þýðir að við verðum að keppa við strákaliðin, sanngjarnt? Ætli ég setji ekki myndir inn af mér og nýja áhugamálinu mínu þegar maðurinn minn og barn nenna að vakna og koma og horfa á mig róa. Þeim ber að sjálfsögðu skylda til að koma á keppnina. Þetta er samt bara svona góðgerðar fjáröflunarkeppni... ég stefni nú samt á sigur! Annað í fréttum er að ég er byrjuð aftur að læra, nú er bara mastersverkefnið mitt eftir. Verkefnið saman stendur af viðtölum sem verða svo vonandi að ritgerð með mikilvægum upplýsingum fyrir fagið. Samkvæmt minni heimildaleit er ekkert vitað um rannsóknarviðfangsefnið, þannig að það sem ég finn hlýtur að auðga tóman gagnagrunn. Ekki margir að velta því fyrir sér hvort kynferðisafbrotameðferðaraðilar trúa á meðferðina sem þeir veita. Skrýtið?? Thor (stóri) er farin að æfa fótbolta á ný. Þar sem hér er sumar og blíða var æfing á ströndinni í gær um sólarlagsbil. Við mæðginin fórum með og lékum okkur í sjónum og stórri sandholu sem einhver hafði grafið fyrr um daginn. Þegar ég var að hlaupa með Thor fram og til baka í fjöruborðinu, vorum að flýja öldurnar, hljóp framhjá okkur kona og spurði hvort ég væri að þessu til að þreyta guttann. Greinilega móðir sem skilur að maður vill að börnin sofni snemma.
þriðjudagur, febrúar 21, 2006
Nýjar myndir
Komnar nýjar myndir....
þriðjudagur, febrúar 07, 2006
Sydney á morgun
Bara rétt að láta vita hvað við erum að gera: Örn og Elínborg komu 25.janúar og eru búin að vera hjá okkur í 2 vikur og búin að fá fullkomið veður. Héldum uppá afmæli Áslaugar og Australia day. 500.000 manns létu sjá sig til að fylgjast með hálftíma flugeldasýningu í boði Lottery West. Erum búin að fara á ströndina, golf, tónleika á Sandalford vínekrunni, út að borða, út að djamma, dýragarðinn í Perth, Caversham wildlife park, skoða söfn og bæinn, dagsferð til Rottnest island ofl... Á morgun erum við að fara í 4 daga til Sydney... um helgina verður farið á golfvöll hérna í Perth til að fygljast með Jonnie Walker PGA gólfmótinu.
Áslaug setur inn myndir fljótlega...
 Á útitónleikum/pikknick......

|