Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

Blogg

föstudagur, mars 24, 2006 Hann er útsmoginn þessi litli kall

Hérna eru nokkrar sögur af Thor sem við viljum ekki gleyma og ætlum að geyma hérna.

Þegar hann vill segja að honum finnist eitthvað skemmtilegt þá segir hann "I'm like that".

Fjóla kom til að passa Thor um daginn. Thor fór strax í það að prófa hvað hann kæmist upp með hjá henni. Hann mátti fá nammi. Hann mátti fá horfa á sjónvarpið. Hún vildi leika það sem hann vildi leika. Það tók hann eina mínútu að átta sig á þessu og fleiru.

Til að sjá hversu duglegur þessi þjónn var þá settist hann á gólfið og sagði við Fjólu: "Thor kann ekki að labba". Hann tók í annan fótinn og sýndi henni og sagði: "Thor er með of litla fætur".

Ég held að með þessu hafi hann viljað láta Fjólu labba með sig útum allt. Svona eins og afi hans fékk að gera þegar hann kom í heimsókn.

Hann vildi fara út að hjóla í gær og sagði við mömmu sína í gær "Ég ætla að hjóla langt langt langt þannig að þú sérð mig ekki."

Síðan ætlar hann að fljúga einn til Íslands í bláu flugvélinni mamma hans og pabbi eiga að vera í rauðu flugvélinni. Hann vill ekki stoppa í Tælandi, Singapore, London eða Köben á leiðinni heim. "Fyrst til Íslands" sagði hann.

Við erum hætt að gefa honum nammi nema á laugardögum sem við köllum nammidag. Hann er sáttur við þetta og hættir að suða um eitthvað þegar hann heyrir að það er ekki nammidagur. En það eru bara tveir dagar í vikunni hjá honum. Þegar við segjum að það sé ekki nammidagur þá segir hann "ohhh, já það er sunnudagur" og þegar hann er svo spurður hvað klukkan er þá er hún alltaf átta.

Thor spurði mig hvort að ég vildi taka sængina hans niður í stofu og ég sagði já þá varð hann mjög hissa og sagði: "Ha þú sagðir já en ekki nei".

miðvikudagur, mars 22, 2006 Naglfar raiders og ANA rowing regatta 2006

Ég var að setja inn myndir frá róðrarkeppnisdeginum mikla.
Liðið skipaði fremst Kvitka (Kanada), Chris (Ástralía), ég (Ísland) og Deanna (Kanada) aftast . Eins og þið sjáið var þetta alþjóðlegt lið. Liðið okkar fékk nafnið Naglfar raiders. Naglfar er auðvitað skip hinna dauðu úr goðafræðinni og raiders var viðbót komin frá Chris svo ástralir gætu borið fram amk hluta nafnsins, og eins og hann benti á voru víkingar raiders (árásarmenn). Chris hannaði svo mynd á boli fyrir okkur sem skapaði auðvitað heilmikinn liðsanda.
Eftir 5 æfingar, sem er staðlaður fjöldi fyrir keppnina, hittust 40 lið á sunnudagsmorgni til að keppa um sigur. Við fórum því miður ekki heim með bikarinn, en þóttum standa okkur vel. Við vorum eina (kynja)blandaða liðið og urðum því að keppa við karlaliðin. Fyrra liðið sem við kepptum við vann okkur nokkuð vel, en seinna liðið vann okkur með einnar sekúndu mun. Ég var öskuill yfir þessu tapi, en maður verður bara að taka þessu eins og hverju öðru hundsbiti. Best var samt að seinna liðið var eitthvað að kommenta við okkur við ráslínuna að við væri bara stelpulið, það hlýtur að svíða að vinna svo ekki með meira en 1 sek. mun!
Við vorum alla veganna með bestan tíma í okkar riðli, eins og eiginmaður minn benti mér á. Riðillinn var blönduð lið!
Planið er svo að æfa á miðvikudagskvöldum þar til tími liðskvenna er liðin í Ástralíu. Ég held það verði ekki fleiri keppnir haldnar á þeim tíma, en ef svo væri, væri ég til í slaginn.

þriðjudagur, mars 21, 2006 smá skúbb

Við fórum og fengum okkur kebab hjá Turkish Kebab í hverfinu hjá okkur. Sveitti tyrkinn þurfti ekki að spyrja okkur hvað við vildum fá heldur spurði hann okkur hvort að við vildum þetta venjulega. Er það gott eða slæmt? Við ákváðum að panta auka franskar bara til að koma honum á óvart.

Ég fór með jr. í klippingu um daginn. Mamma hans samþykkti það og við fórum einir. Svo þegar við feðgarnir komum heima þá fékk Áslaug sjokk. Ég efast um að við verðum sendir aftur í þessu lífi....

Fyrir

Eftir


Hárið var látið fjúka -



Svo er það í fréttum að við ætlum að koma heim í júní. Þá erum við búin að vera í Ástralíu í 1 & 1/2 ár.

Róðrarkeppnin hjá frúnni var um síðustu helgi - við ætlum að setja inn myndir fljótlega.

Powered by Blogger

Eldra blogg