þriðjudagur, maí 09, 2006
Heim á klakann
Þá er Ástralíu ævintýrið senn á enda. Við erum búin að kaupa flugmiða heim. Við förum frá Perth til Singapore 14.júní og stoppum í 2 daga. Síðan förum við til köben 17.júní að heimsækja vini okkar sem búa þar og fljúgum síðan til Íslands 21.júní.
Það er margt sem maður hefði viljað sjá í Ástralíu áður en maður færi heim. En það er líka mjög margt sem við höfum fengið að upplifa og kannski erfitt að ná öllu.
Okkur hefur alltaf langað til að fara og skoða Melbourne þannig að við ætlum að skella okkur í helgarferð um næstu helgi. Thor jr. ætlar að koma með okkur og er búinn að láta okkur vita að flugvélin sé blá á litinn. Hann verður eflaust fyrir vonbrigðum þegar hann sér að Quantas er með hvítar og rauðar flugvélar. Þetta verður svona smá æfing fyrir 12-13 tíma flug frá Singapore til Köben.
Þegar við fluttum til Ástralíu þá gáfu bræður mínir okkur 100 dollara svo að við gætum ferið að að heimsækja Harald Bishop en hann er karekter í sápuóperunni "Nágrannar" sem er tekin upp í Melbourne. Við ætlum að sjá til hvort að við förum að heimsækja Ramsey street! En ég kynnti mér þetta aðeins og það er hægt að fara að heimsækja stúdíóið - og ég heyrði að framleiðendur þáttanna eru búnir að banna leikaranum sem leikur "Toby" eða "Körtuna" að taka á móti gestum. Hann er víst búinn að sofa hjá svo mörgum konum sem að koma þarna að það er orðið vandamál.... það held ég nú
mánudagur, maí 01, 2006
Afmæli verkalýðsleiðtogans
Thor jr. á afmæli í dag.

"It's my birthday day" eins og hann segir sjálfur. Við héldum afmælisveislu fyrir hann í gær. Nokkrir vinir okkar komu og fengu sér kökur og gos. Thor fannst best að gestirnir komu með pakka. Við gáfum Thor litla tölvubók (leap pad), tölva sem les bækur, kennir börnum að reikna og undirbýr þau fyrir lestrarkennslu. Thor tók tölvuna sína og sagðist ætla upp að vinna eins og pabbi. Það læra börn sem fyrir þeim er haft!
 Thor fékk fótboltabúning í gjöf og var mjög ánægður. Verst að þetta er ekki rétta liðið.
Í dag hélt Thor uppá afmælið sitt á leikskólanum, við fórum með köku með nammi á og vakti það mikla lukku. Thor var áður búin að segja öllum á leikskólanum að hann ætti afmæli í dag. Vildi greinilega ekki missa af hamingjuóskum.
 Kaka 2 daga í röð kemur skapinu í lag.

|