Thor og Áslaug
Sleppa slóðum.
blogg myndasíða Áslaugar
Thor og Áslaug
1/16 Coode Street
6151 South Perth
WA Astralia
Thor m:+61(0)416974848
thorthors@gmail.com
skype:thorthors6456
Áslaug m:+61(0)416966210
aslaugk@gmail.com
skype:aslaugk
H: +61(0) 893676945
 

Blogg

laugardagur, október 22, 2005 Löggan og gleðikonan!

Síðasta fimmtudag áttum við að fá tvo gestafyrirlesara í tíma sem hvorugur komst svo. Fyrri fyrirlesarinn átti að vera lögga sem vinnur við kynferðisglæpi í Perth. Hann mætti ekki því nú stendur yfir rannsókn á andláti eins versta kynferðisglæpamanns vestur Ástralíu. Hann hengdi sig í hágæslu fangelsinu Casuarina, en fangelsisyfirvöld hafa ekki viljað gefa út með hverju hann hengdi sig. Ég giska á belti fangavarðar - sjáum svo til hvað kemur út úr þessari rannsókn.
Næsti fyrirlesari átti að vera madam í einu brotheli (hóruhúsi) hérna í Perth borg. Hún mætti ekki líklega vegna anna! Við hittum hana nú samt í næstu viku ef allt gengur samkvæmt áætlun. Sem það hefur einmitt ekki verið að gera undanfarið.
Til þess að redda málunum ákvað kennarinn að við færum bara í skoðunarferð í Casuarina þennan dag til að bæta okkur tapið. Morgunin fyrir tímann fékk kennarinn þær fréttir að þeir væru með "lock down" vegna óeirða í fangelsinu. Við munum því gera okkur ferð þangað í næstu viku líka og mætum snemma morguns. Vonum svo bara að það verði ekki aftur "lock down" þar meðan við erum stödd í fangelsinu. Því þá verðum við lokuð inni líkt og fangarnir. Þetta er náttúrulega hágæslu fangelsi þekktustu fanganýlendu heims.

miðvikudagur, október 19, 2005 í sól og sumaryl

Coode stræti er búið að vera eitt flensubæli síðustu 2 vikurnar. Fyrst var það Thor jr. sem fékk hita og meðlæti og var veikur í viku. Thor er orðinn góður en núna er það Áslaug. Hún er búin að ná 5 dögum og það stefnir í að hún nái metinu hans Thors jr.

Þeir sem vilja aðstoða okkur í þessum veikindum er þá er hægt að senda nammi frá Íslandi til Ástralíu. Heimilisfangið okkar er hérna til vinstri. Kolla vinkona okkar kom í heimsókn í vikunni með 3 tvennur - en tengdamamma hennar er búin að senda þeim nokkur tonn af íslensku nammi.

Núna er 1 mánuður þangað til Áslaug klárar 2. önn og sumarfríið byrjar. Sumrinu verður varið á stöndinni en Thor jr. er kominn með rétta búnaðinn.

Honum finnst mjög skemmtilegt að setja gleraugun á sig og synda í gestarúminu.

föstudagur, október 07, 2005 Tilviljun...ég held ekki!

Ég hef verið að velta hlutunum fyrir mér undanfarið. Afhverju gerir maður suma hluti. Hérna er ástæðan fyrir því að ég endaði í Ástralíu.
Ég heiti Áslaug og Ástralía byrjar á sama staf og nafnið mitt.
Ég á afmæli 26. janúar og þjóðhátíðardagur Ástralíu er 26. janúar.
Ég segi ekki meira...
Svona til að þið gerið ykkur grein fyrir þessum örlögum mínum, þá vann ég á Barnaspítala Hringsins og afmæli Hringsins er 26. janúar, sama dag var Barnaspítalinn opnaður.
Haldið þið nokkuð að ég sé að nálgast hættumörk þess að vera búin að læra yfir mig?
Áslaug

sunnudagur, október 02, 2005 Tittsburg

Ástralir eru með góðan húmor. Hérna kemur einn brandari frá þeim.

American and Australian were talking. The American said to the Australian: I made a total fool of myself the other day. I was buying a train ticket to Pittsburg and the woman who was serving me had huge tits. So instead of asking for two tickets to Pittsburg I said give me two tickets to Tittsburg.

Then the Australin said: “That is nothing. I made a bigger fool of myself this morning. I was going to ask my wife to pass me the milk and accidentally said: thanks for ruining my live bitch!!

Síðan var hérna spurning dagsins í blaðinu um daginn: Hvað myndir þú gera ef þú fengir að vera ósýnilegur í einn dag (börn voru spurð). 9 ára strákur sagði: "Ég myndi dansa nakinn fyrir framan morðingja til að sanna að ég sé betri en hann".

Allavegana - takk fyrir að taka mig með til Ástralíu Áslaug.

Powered by Blogger

Eldra blogg